Opnunartímar og lokanir stofnana Vestmannaeyjabæjar vegna Covid-19
Vísað er til fyrri tilkynninga um lokanir og takamarkanir á opnunartíma stofnana Vestmannaeyjabæjar vegna útbreiðslu COVID-19.
Að tilmælum almannavarna og sóttvarnalæknis, sem og fyrirmæla aðgerðarstjórnar almannavarna í Vestmannaeyjum, hefur Vestmannaeyjabær brugðist við með ýmsum lokunum og takmörkunum á opnunartímum og þjónustu stofnana, í þeim tilgangi að draga úr útbreiðslu veirunnar eins og hægt er.
Opnunartímar stofnana eru nú sem hér segir:
Stofnun |
Opnunartímar á starfsstöð |
|
Grunnskóli Vestmannaeyja |
Fjarkennsla (útfærsla kemur frá skóla) |
|
Víkin 5 ára deild |
7:45-15:30 (útfærsla kemur frá skóla) |
|
Kirkjugerði |
7:45-15:30 (útfærsla kemur frá skóla) |
|
Sóli |
Lokað til 26. mars nk. Opnar 27. mars nk. |
|
Frístund |
Lokað. Opið fyrir forgangshópa framlínustarfsfólks |
|
Tónlistarskóli |
Fjarkennsla |
|
Sambýlið |
Engar heimsóknir leyfðar |
|
Hraunbúðir |
Engar heimsóknir leyfðar |
|
Heimaey hæfingarstöð |
Engar heimsóknir leyfðar |
|
Endurvinnslan |
Lokað |
|
Eldheimar |
Lokað |
|
Sagnheimar |
Lokað |
|
Bókasafn |
Lokað, en útlán á bókum eru í boði í s. 488-2040 |
|
Héraðsskjalasafn |
Lokað |
|
Bæjarskrifstofur- Bárustíg 15 |
Lokað |
|
Bæjarskrifstofur- Rauðagerði |
Lokað |
|
Bæjarskrifstofur- Tæknideild |
Lokað |
|
Höfnin |
Enginn opnunartími. Vaktsími hafnarvarða 893-0027 |
|
Þjónustumiðstöðin |
Enginn opnunartími. Símanúmer 488-2500 |
|
Féló (félagsmiðstöðin) |
Lokað |
|
Íþróttamiðstöðin |
Lokað |
|
Herjólfshöllin |
Lokað |
|
Týsheimilið |
Lokað |
|
|
|
|
Opnunartímar og þjónusta geta tekið breytingum með litlum fyrirvara.
Hægt er að beina erindum í gegnum síma á hefðbundnum opnunartímum (dagvinnutíma) eða með tölvupósti á postur@vestmannaeyjar.is. Þeim tilmælum er beint til fólks að beina sem flestum erindum með þeim hætti. Hægt verður að hringja á hefðbundinn hátt í gegnum skiptiborð, í síma 488-2000. Ef ekki næst í starfsmann taka þjónustufulltrúar skilaboð.
Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum um starfsemi Vestmannaeyjabæjar á vef bæjarins vestmannaeyjar.is
Ákvörðun um skerta opnunartíma stofnana bæjarins á við meðan samkomubann stjórnvalda er í gildi, en ákvörunin er endurskoðuð reglulega.