Álagning gjalda fyrir árið 2023
Álagning fasteignaskatts, holræsagjalda, sorpeyðingar- og
sorphreinsunargjalda
1. Fasteignaskattur af húsnæði verði eftirfarandi hlutfall af fasteignamati þeirra samkvæmt II. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, með síðari breytingum, og reglugerð um fasteignaskatt nr. 1160/2005.
a). Íbúðir og íbúðarhús, útihús og mannvirki á
bújörðum, sem tengd eru landbúnaði og sumarbústaðir: 0,268 %.
b). Sjúkrastofnanir
skv. lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leiksskólar, íþróttahús og bókasöfn 1,32%
c). Allar aðrar
fasteignir: 1,4%.
2. Fráveitugjald af fasteignamati fasteignar skv. 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 .
a) Íbúðir og íbúðahús,
útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði og sumarbústaðir: 0,20%.
b) Allar aðrar
fasteignir: 0,30%.
3. Bæjarráð samþykkir að lagt verði
sorpeyðingargjald á hverja íbúð, kr. 48.481 og að
a) sorphirðu- og tunnuleigugjald verði kr. 21.462 á hverja íbúð.
b) Sorpbrennslu– og
sorpeyðingargjöld fyrirtækja samkvæmt samþykktri gjaldskrá um meðhöndlun
úrgangs sem tekur gildi þann 1. janúar 2023.
4. Gjalddagar fasteignagjalda skulu vera tíu þ.e. 15. feb., 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. sept., 15. okt., 15. nóv.
5. Dráttarvextir reiknast af gjaldföllnum fasteignagjöldum 30 dögum eftir gjalddaga.
6. Bæjarráð samþykkir að veittur verði 5% staðgreiðsluafsláttur af fasteignasköttum, holræsagjöldum skv. liðum 1 og 2 hér að ofan, séu þau að fullu greidd eigi síðar en 7. febrúar 2023.
7. Bæjarráð samþykkir að fasteignaeigendur 67 ára og eldri sem búsettir eru í fasteignum sínum og álagning nær til, fái 85% afslátt af gjöldum fyrir sorphreinsun og sorpeyðingu sbr. 3. tl. Jafnframt nær umræddur afsláttur til lóðarleigu.
8. Bæjarráð samþykkir að fella niður fasteignagjöld ellilífeyrisþega og öryrkja skv. neðangreindum reglum:
Reglur um afslátt af fasteignagjöldum hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum með lögheimili í Vestmannaeyjum.
Samkvæmt nýjum lóðarleigusamningum nemur loðarleiga 1% af lóðarhlutamati Íbúðarhúsnæðis og 3,5% af lóðarhlutamati atvinnuhúsnæðis.
1. gr.
Elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Vestmannaeyjum og eru þinglýstir eigendur viðkomandi húsnæðis er veittur afsláttur af fasteignaskatti, fráveitugjaldi, sorpeyðingar- og soprhiðurgjöldum og lóðarleigu samkvæmt reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga sem og 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Afslátturinn er tengdur viðmiðunartekjum skv. 5. gr. reglnanna.
2. gr.
Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur;
a)
sem
eru 67 ára á árinu eða eldri, eða
b)
sem
hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1. janúar á álagningarárinu,
c)
sem
búsettir eru í íbúð þeirri sem álagningin nær til.
3. gr.
Þegar
um hjón eða sambúðaraðila er að ræða nægir að annað þeirra fullnægi því
skilyrði að vera elli- og/eða örorkulífeyrisþegi.
Falli
annar aðilinn, frá, þá á eftirlifandi rétt á því að njóta afsláttar hjóna, eða
sambúðaraðila út árið sem fráfallið átti sér stað, óski hann þess.
4. gr.
Afsláttur miðast við tilteknar viðmiðunartekjur einstaklinga eða hjóna, þ.e. tekjum sem mynda álagningarstofn tekjuskatts, útsvars og fjármagnstekjuskatts, eins og þesssar tekjur voru árinu á undan álagningarári. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks. Gögnin eru sótt til Skattsins (áður RSK). Þegar nýtt skattframtal á álagningarárinu liggur fyrir er heimilt að endurreikna afslátt þeirra sem þess óska. Viðmiðunarfjárhæðirnar skulu endurskoðaðar árlega.
5. gr.
Viðmiðunartekjur
eru sem hér segir:
1. Fyrir einstaklinga:
a. Brúttótekjur 2021 allt að 5.500.000
kr: Full niðurfelling
b. Brúttótekjur 2021 allt að 5.750.000
kr: 70% afsláttur.
c. Brúttótekjur 2021 allt að 6.000.000
kr:: 30% afsláttur
2. Fyrir hjón:
a. Brúttótekjur 2021 allt að 7.500.000
kr: Full niðurfelling
b. Brúttótekjur 2021 allt að 8.000.000kr:
70% afsláttur
c. Brúttótekjur 2021 allt að 8.500.000
kr: 30% afsláttur
Veittur er afsláttur af sorpeyðingar- og sorphirðugjöldum og lóðarleigu til handa ellilífeyrisþegum og 75% öryrkjum í samræmi við viðmiðunartekjur 5.gr. reglnanna.
Samþykkt samhljóða í bæjarráði 14. desember 2022