Stöðuleyfi

Í samræmi við samþykkt Vestmannaeyjabæjar um Götu-og torgsölu auglýsir Umhverfis- og framkvæmdasvið eftir umsóknum fyrir stöðuleyfi.

Umsóknum skal skila skriflega, til Umhverfis- og framkvæmdasviðs Kirkjuvegi 50, beint til skipulagsfulltrúa eða á netfangið:  umhverfissvid@vestmannaeyjar.is .

Aðsetur: Ráðhús Vestmannaeyja, Kirkjuvegi 50.
Skrifstofa umhverfis-og framkvæmdasviðs er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 8:00 – 15:00. föstudaga 8:00-13:00
Viðtals- og símatími byggingarfulltrúa er milli kl. 10:00 og 12:00 alla virka daga
Sími: 488-2530

Um er að ræða tvö sölusvæði:
Svæði A: þrjú leyfi við Básaskersbryggju
Svæði B: tvö leyfi við Skipasand

Við afhendingu umsóknar skal umsækjandi tilgreina staðsetningu, tímabil og þá skal fylgja mynd af söluvagni/bás ásamt tækniupplýsingum.

VIGTARTORG
Vestmannaeyjabær mun í sumar leigja út fjóra sölubása á Vigtartorgi fyrir ýmiskonar markaði, vörukynningar o.fl. Hægt er að senda inn umsóknir og fyrirspurnir á netfangið: umhverfissvid@vestmannaeyjar.is

Gjöld fyrir stöðuleyfi eru samkvæmt gjaldskrá samþykktar.

AUGLÝSINGASKILTI
Að gefnu tilefni er eigendum verslana og veitingahúsa bent á að lausaskilti sem auglýsa þjónustu, vörur og opnunartíma starfsstöðvar er aðeins heimilt að setja upp á eigin lóð eða við aðalinngang nema að fengnu leyfi Umhverfis- og skipulagsráðs. Lausaskilti skulu aðeins standa úti á opnunartíma startsstöðvar og skal stærð þeirra vera innan við 1 fermeter. Staðsetja skal lausaskilti þannig að umferð vegfaranda sé greið og hindrunarlaus.

Öllum umsóknum skal skila skriflega, til Umhverfis- og framkvæmdasviðs Kirkjuvegi 50, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið:  umhverfissvid@vestmannaeyjar.is