14. júní 2004

Hreinsunarátak sumarið 2004

Árlegt vorhreinsunarátak verður 21. júní - 2. júlí n.k. og vilja bæjaryfirvöld hvetja íbúa til að hreinsa lóðir sínar í hinu sameiginlega árlega átaki við að hreinsa og fegra bæinn. Mikilvægt er fyrir ás

Árlegt vorhreinsunarátak verður 21. júní - 2. júlí n.k. og vilja bæjaryfirvöld hvetja íbúa til að hreinsa lóðir sínar í hinu sameiginlega árlega átaki við að hreinsa og fegra bæinn. Mikilvægt er fyrir ásýnd bæjarins að húseignir og lóðir séu snyrtilegar. Húseigendum og lóðarhöfum er skylt að sjá um að svo sé.  Þó er víða að finna hús og lóðir þar sem viðhaldi og frágangi mannvirkja er verulega ábótavant. Þetta setur ekki einungis ljótan svip á umhverfið heldur leiðir það oftast til aukakostnaðar síðar fyrir eigendur og rýrir endursöluverð eigna.  Húseigendur og lóðarhafar eru því hvattir til þess að huga vel að eignum sínum með stöðugu viðhaldi.  Bent er á að hægt er að losa sorpið í flokkunarstöð Sorpeyðingarstöðvarinnar.  Þessar tvær vikur munu bæjarstarfsmenn fara um hverfi bæjarins og hirða upp rusl, en skipulag verður sem hér segir:
 
Mánudag og þriðjudag  21. og  22. júní
Svæði 1: Svæðið frá hraunjaðri að Skólavegi, neðan Kirkjuvegar.

Miðvikudag og fimmtudag  23. og  24. júní
Svæði 2: Svæðið frá Skólavegi að Illugagötu.

Föstudag og mánudag  25.  og  28.  júní
Svæði 3: Svæðið ofan Kirkjuvegar, austan Strembugötu.

Þriðjudag og miðvikudag  29. og  30. júní
Svæði 4: Svæðið ofan Kirkjuvegar, vestan Strembugötu.

Fimmtudag og föstudag  1. og  2.  júlí
Svæði 5: Vesturbærinn

Skoða kort- með skiptingu bæjarins (.pdf, 358 kb)

Allt rusl sem fellur til við lóðarhreinsun skal skilja eftir við gangstéttarbrún, flokkað, og skal það vera í umbúðum eða bundið.  Ruslið skal flokkað sem hér segir:Garðaúrgangur, trjágreinar, brennanlegt sorp, óbrennanlegt sorp.
Óheimilt er með öllu að skilja eftir númerslausa bíla og bílgarma á götum og bifreiðastæðum bæjarins. Bíleigendur skulu sjá um að koma slíkum bílum til geymslu eða eyðingar, að öðrum kosti munu þeir verða fjarlægðir á kostnað eigenda.
Ýmis konar efnavörur til heimilisnota eru skaðlegar bæði mönnum og umhverfinu, þótt við vildum ekki vera án þeirra.  Rétt notkun þeirra er nauðsynleg og þá ekki síður förgun þeirra að notkun lokinni.  Algeng spilliefni sem notuð eru á heimilum eru til dæmis rafhlöður og rafgeymar, lökk og lakkleysar, málning  og fleira.  Tekið er á móti öllum spilliefnum frá heimilum í Sorpeyðingarstöðinni og apótek taka á móti öllum lyfjaafgöngum.

Að gefnu tilefni eru bæjarbúar vinsamlegast beðnir um að losa garðaúrgang úr plastpokum þegar  hent er í gáminn við Sorpeyðingarstöðina. 

Allar nánari upplýsingar veittar í síma 481-1533 og á www.vestmannaeyjar.is
Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar.


Jafnlaunavottun Learncove