Frístundastyrkur

Vestmannaeyjabær styrkir tómstundaiðkun allra barna á aldrinum 2 – 18 ára. 

Börnin þurfa að hafa lögheimili í Vestmannaeyjum. 

Markmiðið og tilgangur frístundastyrksins er að:

  • a) Styrkja börn á umræddum aldri til þátttöku í uppbyggilegu frístundastarfi og auka möguleika til þátttöku óháð efnahag.
  • b) Ýta undir aukna hreyfingu og félagsþátttöku barna.
  • c) Vinna gegn óæskilegu brottfalli í eldri aldurshópi iðkenda.
  • d) Auka virkni í frístundatíma barna.

Frístundastyrkurinn er 50.000 kr fyrir einstakling á aldrinum 2 – 18 ára og er úthlutaður til foreldra/forráðamanna sem greiða þátttökugjald hjá þeim félögum/fyrirtækjum/stofnunum sem hafa gildan samstarfssamning hjá Vestmannaeyjabæ.

Nánari upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir: ernag@vestmannaeyjar.is

Samstarfsaðilar vegna frístundastyrks eru:

Umsókn fyrir samstarfsaðila
Reglur um frístundastyrk