Félagsmiðstöð

Félagsmiðstöðin er fyrir börn á aldrinum 10-16 ára.  

Þar er stuðlað að jákvæðum þroska ungs fólks og sjálfstæði, bæði í verki og í félagslegum samskiptum og gera þau hæfari til að takast á við lífið.

Áhersla er lögð á viðurkennt tómstundastarf, forvarnir, fræðslu, örvun félagsþroska og jákvæðra samskipta

Ýmislegt er í boði í félagsmiðstöðinni t.d. billiard, þythokkí, horfa á sjónvarpið, spila tölvuleiki o.fl. Klúbbastarf er í boði og einnig eru skemmtilegir viðburðir í hverjum mánuði.

Forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar er Heba Rún Þórðardóttir og hægt að ná í hana í tölvupósti heba@vestmannaeyjar.is eða í síma 488 2362.

Félagsmiðstöðin er við Strandveg 50. Gengið er inn á bakvið, sími á opnunartíma Féló er 488 2361