Stjórn Náttúrustofu Suðurlands -

16.01.2017

Náttúrustofa Suðurlands -

Fundargerð

Stjórnarfundur í Náttúrustofu Suðurlands - NS- 16. janúar 2017, kl. 13.00

Fundurinn er haldinn fundarsal á 3ju hæð í húsnæði Þekkingarseturs Vm. Strandvegi 50 Vm.

Mættir voru: Rut Haraldsdóttir, (RH) form., Arnar Sigurmundsson(AS) og Stefán Ó. Jónasson.(SÓJ) Á fundinn mættu einnig, Ingvar Atli Sigurðsson, (IAS) forstöðumaður NS og Páll Marvin Jónsson, (PMJ) framkvæmdastjóri ÞSV.



1. mál. Fundargerð síðasta fundar undirrituð af öllum fundarmönnum.



2. mál. Framlag til NS í fjárlögum 2017

Farið var yfir framlög til NS frá ríki og Vestmannaeyjabæ 2017. Fyrir liggur fyrir að í nýsamþykktum fjárlögum ríkisins fyrir 2017 er framlag til NS kr. 17,3 milljónir.



Í drögun að fjárhagsáætlun NS 2017 er reiknað fyrir 19,1 millj. kr. af fjárlögum eða óbreyttri upphæð frá árinu 2016. Samkvæmt upplýsingum frá Ingvari forstm. NS munu forstöðumenn náttúrustofa funda með nýjum umhverfisráðherra á næstunni í þeim tilgangi að fá aukaframlag vegna 2017 af sérstökum lið líkt og gert var á síðasta ári.



Að óbreyttu þýðir þetta lækkun um 1,8 milljón kr. frá ríki til NS ásamt því að framlag Vestmannaeyjabæjar sem er 30% af ríkisframlaginu lækkar um kr. 500 þúsund. Þetta þýðir lækkun um 2,3 milljónir. Það er því mikilvægt að viðbótarframlagið fáist svo að hægt sé að halda uppi starfsemi samkvæmt fjárhagsáætlun.



3. mál. Fjárhagsáætlun NS 2017

Farið var yfir fjárhagsáætlun fyrir 2017 þar sem fram koma að helstu verkefnin eins og Lundahringurinn og Vöktun mælinga á Stórhöfða fyrir Veðurstofuna eru ekki inni í fjárhagsáætlun þar sem að þær upphæðir lágu ekki fyrir þegar hún var gerð. Gert er ráð fyrir að tekjur af þessum verkefnum dekki allan útlagðan kostnað. Fram kom í máli forstm. (IAS) að vöktun á Stórhöfða muni skila tekjum upp á 1,5 milljón fyrir 2017.



Samþykkt að þegar og ef Veiðikortasjóður samþykkir að styrkja Lundahringinn líkt og undanfarin ár taki forstm. saman ítarlega kostnaðar- og tímaáætlun þar sem útgjöld taka mið af framlögum Veiðkortasjóðs. Reiknað er með að það verði í mars/apríl nk.



Rætt var um samning við Umhverfisráðuneytið varðandi rannsóknir og vöktun í tengslum við friðlýsingu fuglabjarga í Eyjum. Vestmannaeyjabær vill ná meiri sátt um friðlýsinguna meðal bæjarbúa og hagsmunaaðila áður en gengið verður frá samningum. Vonir standa til um að hægt verði að fá niðurstöðu fyrir sumarið 2017 en væntanlegur samningur hljóðar upp á 3 millj. kr. á ári og skiptir því máli varðandi rekstur NSS.



Þjónustusamningur við ÞSV var ræddur og lagði PMJ, frkvstj. ÞSV fram uppl. varðandi, húsaleigu, ljós, hita, ræstingu, bókhald , fjármál og aðra fyrir NS. Kostnaður NS hækkar um 30 þús. kr. frá 1. Jan. sl. vegna meira umfangs þjónustu verður um 150 þús. á mánuði sem er töluvert hærra en upphafleg áætlun gerði ráð ráð fyrir. Breytingin hefur í för með að nokkrir útgjaldaliðir lækki eitthvað á móti. Formanni stjórnar (RH) var falið að endurmeta þessa liði ásamt opinberum framlögum og senda á stjórn þar sem tekið er tillit til þessara breytinga.



4. mál. Orlofsstaða starfsmanna.

Rædd voru orlofsmál starfsmanna NSS. Fundarmenn voru sammála um að miða orlofsauka einnig við orlofstímabilið frá 1. maí til 30. apríl ár hvert sem myndast við ákveðin verkefni, einkum Lundahringinn. Samþykkt að orlofsauki /dagar sem myndast vegna yfirvinnutíma/álags starfsmanna NS í árlegum Lundahring taki mið af reglum um hámarksvinnutíma og hvíldartíma. Fjárhagsáætlun verkefnis verði kynnt ýtarlega fyrir stjórn NS og stuðst verður við áætlunina við framkvæmd verkefnis . Þannig verður réttur atvinnurekanda og starfsmanna NS skýr og litlar líkur á að upp safnist margir auka orlofsdagar vegna yfirvinnu sem nær ómögulegt að nýta á orlofsárinu.



5. mál. Verkefnastaða NS í upphaf árs 2017.

PMJ sagði frá hugmyndum að verkefni sem tengist fuglamerkingum á Suðurlandi og Vestmannaeyjum í samstarfi við Náttúrustofu Suð-Austurlands. Fundarmenn voru sammála um að samstarf um slík verkefni við Nátt-suð-aust- gæti aukið líkurnar á föstu stöðugildi sem gæti skipst á milli náttúrustofanna tveggja. Jafnframt var ræddur sá möguleiki að sækja um í tímabundið verkefni til Uppbyggingarsjóðs Suðurlands til merkingar á svartfugli í Elliðaey og farfuglum á meginlandinu. Einnig þar væri um samstarfsverkefni að ræða og það tengt í senn við atvinnuuppbyggingu í ferðaþjónustu og menningartengda ferðaþjónustu. Samþykkt var að IAS og PMJ fylgi málinu eftir og undirbúi umsókn í Uppbyggingarsjóðs með Náttúrsustofu Suð- Austurlands.



Einnig voru rædd verkefni í tengslum við umhverfismat og hrunhættu. IAS var falið að kanna möguleika á fjármögnun verkefna í tengslum við hrunhættu og í samstarfi við PMJ að skoða hvort NSS geti nýst Merlin verkefninu eða Vestmannaeyjabæ við umhverfismat í tengslum við framkvæmdir í Klettsvíkin



Fundi slitið kl. 14:20 - Páll Marvin Jónsson ritaði fundargerð.