Stjórn Náttúrustofu Suðurlands -

01.03.2013

Náttúrustofa Suðurlands. Fundargerð 28. febrúar 2013.

Fundur í stjórn NS fimmtudaginn 28. febrúar 2013 kl. 15:00.

Mætt voru: Rut Haraldsdóttir, Halla Svavarsdóttir, Jóhanna Njálsdóttir og Ingvar A. Sigurðsson.

1. mál. Fjárhagsstaða NS Farið yfir fjárhagsstöðu stofunnar og rekstrarörðugleika í Framhaldi af fundi bæjarráðs 12. febrúar síðastliðinn. Stjórn felur formanni að leggja fram minnispunkta í samræmi við niðurstöður fundarins.

2. mál. Forstöðumaður fer á fund með umhverfisráðherra í næstu viku og þar sem rætt verður um stöðu náttúrustofanna.

3. mál. Rætt um möguleg verkefni við fuglavöktun næsta sumar.

Fundi slitið 15:30.

Jóhanna Njálsdóttir Rut Haraldsdóttir Halla Svavarsdóttir Ingvar A. Sigurðsson