Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundur nr. 1441

09.12.2010

Bæjarstjórnarfundur 

Haldinn í Akógeshúsinu við Hilmisgötu,

fimmtudaginn 9. desember 2010 og hófst hann kl. 18.00

Fundinn sátu:

Gunnlaugur Grettisson, Elliði Vignisson, Páley Borgþórsdóttir, Páll Marvin Jónsson, Páll Scheving Ingvarsson, Guðlaugur Friðþórsson og Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir.

Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs.

Leitað var afbrigða að taka umræðu um 3. mál í fundargerð fjölskyldu- og tómstundaráðs nr. 76 frá 1. desember sl. Var það samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Dagskrá:

1. 201010081 - Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2011
-FYRRI UMRÆÐA-
Skv. 4. mgr. 24. gr. samþykktar um stjórn Vestmannaeyjabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar gilda engar tímatakmarkanir vegna umræðna um fjárhagsáætlun.

Elliði Vignisson bæjarstjóri hafði framsögu um fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2011 og gerði grein fyrir helstu þáttum hennar í greinargerð. Gengið var til atkvæða um fjárhagsáætlun ársins 2011 og niðurstöðutölur hennar.

Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Vestmannaeyja 2011:
Tekjur alls kr. 2.304.951.000
Gjöld alls fyrir fjármagnsliði kr. 2.425.384.000
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði, neikvæð kr. -120.433.000
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) kr. 308.037.000
Rekstrarniðurstaða, jákvæð kr. 187.604.000
Veltufé frá rekstri kr. 345.270.000
Afborganir langtímalána kr. 61.881.000
Handbært fé í árslok kr. 3.868.942.000
Fjárhagsáætlun B-hluta bæjarsjóðs Vestmannaeyja 2011:
Rekstrarniðurstaða Hafnarsjóðs, hagnaður kr. 214.000
Rekstrarniðurstaða Fráveitu, kr. 0
Rekstrarniðurstaða félagslegra íbúða, tap kr. -30.628.000
Aðrar B-hluta stofnanir, rekstrarniðurstaða, tap kr. -19.606.000
Veltufé frá rekstri Kr. 133.542.000
Afborganir langtímalána kr. 59.392.000
Fjárhagsáætlun samstæðu Vestmannaeyja 2011:
Tekjur alls kr. 3.121.280.000
Gjöld alls kr. 3.212.323.000
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði, neikvæð kr. -91.043.000
Fjármunatekjur(fjármagnsgjöld) kr. 228.627.000
Rekstrarniðurstaða, jákvæð kr. 137.584.000
Veltufé frá rekstri kr. 478.812.000
Afborganir langtímalána kr. 121.273.000
Handbært fé í árslok kr. 3.868.942.000
Samþykkt var með sjö samhljóða atkvæðum að vísa þessum niðurstöðum til síðari umræðu.
2. 201011011F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 128. fundur frá 18. nóvember sl.
Liðir 1-15 liggja fyrir til staðfestingar.
Liðir 1-15 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
3. 201011007F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 9. fundur frá 24. nóvember sl.
Liðir 1, 3-9 liggja fyrir til staðfestingar.
Liður 2 liggur fyrir til kynningar.
Liðir 1, 3-9 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
4. 201011015F - Fjölskyldu- og tómstundaráð - 76. fundur frá 1. desember sl.

Liðir 1-7 liggja fyrir til staðfestingar.

Liður 3 var til umræðu og samþykktar og var hann samþykktur með fimm atkvæðum, Páley Borgþórsdóttir greiddi atkvæði á móti og Páll Scheving Ingvarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Liðir 1,2 og 4-7 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

5. 201012006F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 94. fundur frá 6. desember sl.
Liðir 1-6 liggja fyrir til staðfestingar.
Liðir 1-6 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
6. 201011014F - Bæjarráð Vestmannaeyja - 2903. fundur frá 7. desember sl.
Liðir 6 og 7 liggja fyrir til umræðu og staðfestingar.
Liðir 1,2,5 og 8-10 liggja fyrir til staðfestingar.
Liður 3 og 4 liggja fyrir til kynningar.

Liður 6 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.

Páll Scheving Ingvarsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu á lið 7 í fundargerðinni. Liðurinn var samþykktur með sex atkvæðum.

Liðir 1, 2, 5 og 8-10 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

7. 201012004F - Fræðslu- og menningarráð - 227. fundur frá 7. desember sl.
Liðir 1-4 og 6-7 liggja fyrir til staðfestingar.
Liður 5 liggur fyrir til kynningar.
Liðir 1-4 og 6-7 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20.14