Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundur nr. 1429

18.02.2010

Bæjarstjórnarfundur 

Haldinn Akógeshúsinu við Hilmisgötu,

fimmtudaginn 18. febrúar 2010 og hófst hann kl. 18.00

Fundinn sátu:

Gunnlaugur Grettisson, Elliði Vignisson, Páley Borgþórsdóttir, Páll Marvin Jónsson, Páll Scheving Ingvarsson, Stefán Óskar Jónasson og Kristín Jóhannsdóttir,

Fundargerð ritaði: Elliði Vignisson, bæjarstjóri

Leitað var afbrigða til að taka inn fundargerð fjölskyldu- og tómstundaráðs nr. 59 frá 17. febrúar sl. Var það samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Dagskrá:

1. 201002069 - Afnám sjómannaafsláttar
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hvetur ríkisstjórn Íslands til að láta af áætlunum um afnám sjómannaafsláttar.

Samkvæmt nýju frumvarpi fjármálaráðherra sem lagt hefur verið fram á alþingi verður sjómannaafslátturinn afnuminn í áföngum næstu fimm árin. Verði frumvarpið samþykkt hefur það í för með sér að kjör sex þúsund sjómanna skerðast verulega. Sé horft til Vestmannaeyja þá liggur fyrir að slík samþykkt myndi skerða kjör sjómanna í Vestmannaeyjum um rúmlega 94 milljónir á ári ef miðað er við árið 2008.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja bendir á að sjómannaafslátturinn er viðtekin venja í nágrannalöndum Íslendinga. Þannig er sjómannaafsláttur í Noregi tíu sinnum hærri en hérlendis, í Færeyjum er fimmfaldur munur og í Danmörku þrefaldur. Það skýtur því skökku við að Íslensk stjórnvöld hyggist afnema með öllu afslátt til íslenskra sjómanna.

Ástæða er til að benda á að með sjómannaafslættinum er sjómönnum sýndur sá heiður sem störfum þeirra ber. Ekki einungis stunda íslenskir sjómenn störf sín við erfið skilyrði fjarri fjölskyldum, og eru þeir því á meðan ekki hluti af samneyslu landsmanna, heldur eru störf þeirra einnig undirstaða hagkerfis landsins. Laun þeirra eru jafn misjöfn og plássin eru mörg og jafnvel þótt vel ári núna í skjóli íslensku krónunnar þá ber ekki að nota þetta tímabundna ástand til að gera grundvallar breytingu á skattaumhverfi því sem greinin hefur búið við frá 1954. Halda þarf til haga þeirri staðreynd að á góðæristímanum þegar laun sjómanna drógust verulega aftur úr var skattafslátturinn ekki aukinn.

Þá er einnig ástæða til að vekja athygli á því að fjöldi annarra stétta þjóðfélagsins sem starfa fjarri heimilum sínum ýmist tímabundið eða að staðaldri fá dagpeninga sem að stórum hluta eru skattfrjálsir. Þannig numu dagpeningagreiðslur fyrir árið 2008 8,1 milljarði króna og frádráttur 7,8 milljörðum, samkvæmt gögnum ríkisskattstjóra. Ef tekjuskattur hefði verið greiddur af þeim frádrætti hefði ríkið fengið 2,8 milljarða króna. Heildarkostnaður við afslátt til sjómanna vegna þeirra fjarveru var hinsvegar 1,1 milljarður þetta sama ár.

Gunnlaugur Grettisson

Elliði Vignisson

Páley Borgþórsdóttir

Páll Marvin Jónsson

Stefán Jónasson

Kristín Jóhannsdóttir

Páll Scheving Ingvarsson

Ályktunin var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

2. 201001007F - Bæjarráð Vestmannaeyja - 2883
Liður 1 lá fyrir til staðfestingar.
Liður 1 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
3. 201001006F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 79
Liður 3 lá fyrir til staðfestingar
Liðir 1,2 og 4-6 lágu fyrir til kynningar.
Liður 3 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
4. 201001005F - Fjölskyldu- og tómstundaráð - 57
Liðir 2-7 liggja fyrir til staðfestingar.
Liður 1 liggur fyrir til kynningar.
Liðir 2- 7 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
5. 201002002F - Fræðslu- og menningarráð - 217
Liðir 1-8 lágu fyrir til staðfestingar.
Liður 9 lá fyrir til umræðu og staðfestingar.

Liðir 1-8 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

Liður 9 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.

6. 201002003F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 111
Liðir 1 - 5 lágu fyrir til staðfestingar.
Liðir 1-5 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
7. 201002004F - Bæjarráð Vestmannaeyja - 2884
Liðir 1, 3 og 6 lágu fyrir til staðfestingar.
Liðir 2, 4 og 5 lágu fyrir til kynningar.
Liðir 1, 3 og 6 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
8. 201002006F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 80
Liðir 1 og 2 lágu fyrir til staðfestingar.
Liður 3 lá fyrir til kynningar.
Liðir 1 og 2 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
9. 201002005F - Fjölskyldu- og tómstundaráð - 58
Liðir 1 og 2 lágu fyrir til staðfestingar.
Liðir 1 og 2 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
10. 201002009F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 81
liðir 1 og 2 lágu fyrir til umræðu og staðfestingar.
Liðir 1 og 2 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
11. 201002008F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 112
Liðir 1 lá fyrir til umræðu og staðfestingar.
2 - 10 lágu fyrir til staðfestingar.

Liður 1 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.

liðir 2 - 10 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

12. 201002007F - Fjölskyldu- og tómstundaráð - 59
Liðir 1- 7 lágu fyrir til umræðu og staðfestingar.
Liðir 1 - 7 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:06

Gunnlaugur Grettisson (sign)

Elliði Vignisson (sign)

Páley Borgþórsdóttir (sign)

Páll Marvin Jónsson (sign)

Stefán Jónasson (sign)

Kristín Jóhannsdóttir (sign)

Páll Scheving Ingvarsson (sign)