Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundur nr. 1418

11.05.2009

Bæjarstjórnarfundur

 

 

Fundur var haldinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja fimmtudaginn 22. janúar 2009

  1. 18.00 í Akógeshúsinu við Hilmisgötu.

 

Forseti bæjarstjórnar, Gunnlaugur Grettisson stýrði fundi.

 

Neðangreindir bæjarfulltrúar sátu fundinn.

           

Fundargerð ritaði Rut Haraldsóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs.

 

Dagskrá

 

 

  1. mál nr. 200901093. Tillaga vegna álagningar gjalda fyrir árið 2009

 

Álagningar gjalda árið 2009:

Fyrir liggur svohljóðandi tillaga vegna álagningar gjalda árið 2009

Álagning fasteignaskatts, holræsagjalda og sorpeyðingargjalda árið 2009:

a) Fasteignaskattur af húsnæði verði eftirfarandi hlutfall af fasteignamati þeirra samkvæmt II. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, með síðari breytingum, og reglugerð um fasteignaskatt nr. 945/2000.

1. Íbúðir og íbúðarhús, útihús og mannvirki á bújörðum, sem tengd eru landbúnaði og sumarbústaðir: 0,42 %.
2. Allar aðrar fasteignir: 1,55 %.

b) Holræsagjald af fasteignamati húsa og lóða skv. reglugerð.
1. Íbúðir og íbúðahús, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði og sumarbústaðir: 0,20%.
2. Allar aðrar fasteignir: 0,30%.
3. Heimild til undanþágu er í samræmi við h) lið hér á eftir.

c) Bæjarstjórn samþykkir að lagt verði sorpeyðingargjald á hverja íbúð, kr. 13.237.- og að sorphirðu- og sorppokagjald verði kr. 8.147.- á hverja íbúð.
1. Heimild til undanþágu er í samræmi við g) lið hér á eftir.

d) Sorpbrennslu– og sorpeyðingargjöld fyrirtækja samkvæmt samþykktri gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs sem tók gildi þann 1. janúar 2009.

 e) Gjalddagar fasteignagjalda skulu vera tíu þ.e. 15. feb., 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. sept., 15. okt., 15. nóv.
1. Dráttarvextir reiknast af gjaldföllnum fasteignagjöldum 30 dögum eftir gjalddaga.

f) Bæjarstjórn samþykkir að veittur verði 5% staðgreiðsluafsláttur af fasteignagjöldum, holræsagjöldum og sorpgjöldum skv. b), c), og d) liðum hér að ofan, séu þau að fullu greidd eigi síðar en 13. febrúar 2009.

g) Bæjarstjórn samþykkir að fella niður fasteignagjöld og holræsagjöld ellilífeyrisþega, sem njóta tekjutryggingar, af eigin íbúð, sem þeir búa í.

h) Ennfremur samþykkir bæjarstjórn með tilliti til 4. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, að fella niður fasteignaskatt ellilífeyrisþega af eigin íbúð, sem þeir búa í, á eftirfarandi hátt.
1. Fyrir einstakling:
a. Brúttótekjur 2007 allt að 2.447 þús. kr. 100% niðurf.
b. Brúttótekjur 2007 allt að 2.895 þús. kr. 70% niðurf.
c. Brúttótekjur 2007 allt að 3.288 þús. kr. 30% niðurf.


  1. Fyrir hjón, sem bæði eru ellilífeyrisþegar:
    a. Brúttótekjur 2007 allt að 2.944 þús. kr. 100% niðurf.
    b. Brúttótekjur 2007 allt að 3.558 þús. kr. 70% niðurf.
    c. Brúttótekjur 2007 allt að 4.034 þús. kr. 30% niðurf.

    Við mat á niðurfellingu fasteignaskatts af eigin íbúð 75% öryrkja, sem þeir búa í, skal hafa hliðsjón af fyrrgreindum reglum.

    3. Sorphirðu-/sorpeyðingargjald, holræsagjald og lóðarleiga verði fellt niður eða lækkað í samræmi við ofangreindar reglur hvað varðar eigin íbúð ellilífeyrisþega og 75% öryrkja, sem þeir búa í. “

Tillagan var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

 

 

  1. mál nr. 200901094. Fundargerðir ráða, nefnda og stjórna:

Bæjarráð

 

  1. Fundargerð bæjarráðs nr. 2861 frá 13. janúar sl.

Liður 1 lá fyrir til umræðu og staðfestingar og var hann samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.

Liður 3 lá fyrir til umræðu og staðfestingar og var hann samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.

Liðir 2, 4, 6 og 8 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

 

Liðir 5 og 7 lágu fyrir til kynningar.

 

Aðrar nefndir og ráð

 

 

  1. Fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs nr. 58 frá 22. desember sl.

Liðir 1 – 4 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

 

  1. Fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs nr. 59 frá 8. janúar sl.

Liður 3 lá fyrir til umræðu og staðfestingar og var hann samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.

Liðir 2, 5, 6, 7 og 8 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

 

Liðir 1 og 4 lágu fyrir til kynningar.

 

  1. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs nr. 93 frá 15. janúar sl.

Liðir 1 – 11 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

 

 

 

Fleira ekki bókað. Fundi slitið kl. 18.36

 

Elliði Vignisson (sign)

Guðlaugur Friðþórsson (sign)

Gunnlaugur Grettisson (sign)

Kristín Jóhannsdóttir (sign)

Páley Borgþórsdóttir (sign)

Páll Marvin Jónsson(sign)

Páll Scheving Ingvarsson (sign)