Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundur nr. 1412

08.12.2008

Bæjarstjórn Vestmannaeyja

1412. fundur

Bæjarstjórnarfundur

Fundur var haldinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja mánudaginn 8. desember 2008

kl. 18.00 í fundarherbergi Ráðhússins.

Forseti bæjarstjórnar, Gunnlaugur Grettisson stýrði fundi.

Neðangreindir bæjarfulltrúar sátu fundinn auk Sigurbergs Ármannssonar fjármálastjóra sem ritaði fundargerð.

1. mál. Tillaga vegna álagningar útsvars fyrir árið 2009

Fyrir liggur svohljóðandi tillaga vegna álagningar útsvars árið 2009:

Bæjarstjórn samþykkir að útsvar fyrir árið 2009 verði 13,03% sbr. 23. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, sbr. 6. gr. laga nr. 144/2000.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna.

2. mál. Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar og stofnana fyrir árið 2009

- F Y R R I U M R Æ Ð A -

Sbr. 4. mgr. 24. gr. samþykktar um stjórn Vestmannaeyjabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar gilda engar tímatakmarkanir vegna umræðna um fjárhagsáætlun.

Elliði Vignisson bæjarstjóri hafði framsögu um fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2009 og gerði grein fyrir helstu þáttum hennar í greinargerð.

Gengið til atkvæða um fjárhagsáætlun ársins 2009 og niðurstöðutölur hennar.

Fjárhagsáætlun Sveitarsjóðs Vestmannaeyja 2009:
Tekjur alls kr. 2.331.162.000
Gjöld alls fyrir fjármagnsliði kr. 2.528.397.000
Rekstrarniðurstaða, jákvæð kr. 270.795.000
Veltufé frá rekstri kr. 473.654.000
Afborganir langtímalána kr. 121.333.000
Handbært fé í árslok kr. 4.063.996.000
Fjárhagsáætlun B-hluta bæjarsjóðs Vestmannaeyja 2009:
Rekstrarniðurstaða Hafnarsjóðs, tap kr. 69.816.000
Rekstrarniðurstaða Fráveitu, tap kr. 6.806.000
Rekstrarniðurstaða Sorpeyðingarstöðvar, hagnaður kr. 81.000
Rekstrarniðurstaða Félagslegra íbúða, tap kr. 57.300.000
Rekstrarniðurstaða Náttúrustofu Suðurlands, tap 8.155.000
Rekstrarniðurstaða Hraunbúða, tap kr. 9.207.000
Veltufé frá rekstri 63.419.000
Afborganir langtímalána kr. 88.359.000
Fjárhagsáætlun samstæðu Vestmannaeyja 2009:
Tekjur alls kr. 3.012.957.000
Gjöld alls kr. 3.233.568.000
Rekstrarniðurstaða, jákvæð kr. 92.197.000
Veltufé frá rekstri kr. 537.073.000
Framkvæmdir og sérstök verkefni kr. 45.419.000
Afborganir langtímalána kr. 209.692.000
Handbært fé í árslok kr. 4.063.996.000

Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum að vísa þessum niðurstöðum til síðari umræðu.

Fundi slitið kl. 18.31

Elliði Vignisson (sign.)

Guðlaugur Friðþórsson (sign.)

Gunnlaugur Grettisson (sign.)

Kristín Jóhannsdóttir (sign.)

Páley Borgþórsdóttir (sign.)

Páll Marvin Jónsson (sign.)

Páll Scheving Ingvarsson (sign.)