Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundur nr. 1366

19.10.2005

Bæjarstjórn Vestmannaeyja

1366. fundur

Ár 2005, miðvikudaginn 19. október kl. 18.00 var fundur haldinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja í sal Hitaveitu Suðurnesja að Tangagötu 1.

Forseti bæjarstjórnar, Lúðvík Bergvinsson stjórnaði fundi.

Neðangreindir bæjarfulltrúar sátu fundinn auk Bergs E. Ágústssonar bæjarstjóra og Viktor S. Pálssonar sem ritaði fundargerð.

Áður en gengið var til auglýstrar dagskrár, óskaði forseti bæjarstjórnar eftir að taka á dagskrá fundarins með afbrigðum fundargerð fjölskylduráðs frá 18. október sl., sbr. 2. mál i) og tillögu meirihluta bæjarstjórnar sbr. 1. mál b).

Var það samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum

Dagskrá

1. mál. Tillögur og mál til umræðu og afgreiðslu að frumkvæði bæjarstjórnarmanna.

a.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að kjósa fimm manna nefnd, sbr. 43. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar sem hefur það hlutverk að fjalla um stöðu safna bæjarins og móta tillögur um framtíðarhlutverk þeirra og skipulag. Nefndin skal í störfum sínum hafa það að leiðarljósi hvernig Vestmannaeyjabær geti eflt ferðaþjónustu og menningarlíf í Vestmannaeyjum með söfnum sínum, tengslum þeirra við fyrirhugað menningarhús og með aukinni nýtingu úteyjanna, þ.m.t. Surtseyjar.

Í nefndinni, sem skal vera undir forystu menningar- og markaðsfulltrúa Vestmannaeyjabæjar, skulu sitja einn fulltrúi ferðaþjónustuaðila í Vestmannaeyjum, einn fulltrúi bjargveiðifélaganna og tveir fulltrúar Vestmannaeyjabæjar/safnanna. Þá skal nefndin í störfum sínum kalla eftir viðhorfum og athugasemdum frá öðrum hagsmunaaðilum sem málinu tengjast bæði í Vestmannaeyjum og annarstaðar.

Nefndin skal skila tillögum til bæjarstjórnar eigi síðar en 1. desember 2005.

Lúðvík Bergvinsson (sign.)

Arnar Sigurmundsson (sign.)

Guðrún Erlingsdóttir (sign.)

Elsa Valgeirsdóttir (sign.)

Elliði Vignisson (sign.)

Stefán Jónasson (sign.)

Ásta Halldórsdóttir (sign.)

Tillagan samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

b.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að beina því til stjórnenda á vinnustöðum Vestmannaeyjabæjar að bregðast jákvætt við óskum kvenna um að leggja niður vinnu í þeim tilgangi að taka þátt í dagkrá Baráttudags kvenna 24. okt nk. í tilefni 30 ára afmælis kvennafrídagsins. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hvetur konur, sem vilja taka þátt í dagskránni, til að komast að samkomulagi við samstarfsmenn og stjórnendur um tilhögun.

Bæjarstjórn hvetur aðra atvinnurekendur til þess að gera slíkt hið sama og konur í Vestmannaeyjum að taka þátt í dagskránni.

Lúðvík Bergvinsson (sign.)

Arnar Sigurmundsson (sign.)

Guðrún Erlingsdóttir (sign.)

Elsa Valgeirsdóttir (sign.)

Elliði Vignisson (sign.)

Stefán Jónasson (sign.)

Ásta Halldórsdóttir (sign.)

Tillagan samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

2. mál. Fundargerðir ráða, nefnda og stjórna.

a) Fundargerð hafnarstjórnar frá 23. september sl.

- Liðir 1, 2 og 4 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liður 3 lá fyrir til kynningar.

b) Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs nr. 28 frá 28. september sl.

- Liðir 1 til 8 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liðir 9 og 10 lágu fyrir til kynningar.

c) Fundargerð bæjarráðs nr. 2771 frá 3. október sl.

- Liðir 1, 2 og 10 lágu fyrir til umfjöllunar og staðfestingar:

- Liður 1: Liðurinn var til kynningar.

- Liður 2: Liðurinn var til kynningar.

- Liður 10: Liðurinn samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liðir 3, 4, 6 til 9 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liður 5 lá fyrir til kynningar.

d) Fundargerð fjölskylduráðs frá 4. október sl.

- Liðir 1 til 7 og 9 lágu fyrir staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liðir 8 og 10 til 13 lágu fyrir til kynningar.

e) Fundargerð skólamálaráðs nr. 159 frá 11. október sl.

- Liðir 3 til 12 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liðir 1og 2 lágu fyrir til kynningar.

f) Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs nr. 29 frá 12. október sl.

- Liður 1 lá fyrir til umfjöllunar og staðfestingar og var hann samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liðir 2 til 9 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

g) Fundargerð menningar- og tómstundaráðs nr. 17 frá 13. október sl.

- Liðir 1 til 13 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

h) Fundargerð bæjarráðs nr. 2772 frá 17. október sl.

- Liðir 1 og 4 lágu fyrir til umfjöllunar og staðfestingar.

- Liður 1: Liðurinn samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liður 4: Bæjarstjórn samþykktir að tilnefna eftirtalda aðila sem fulltrúa Vestmannaeyjabæjar á aðalfundi SASS.

Aðalmenn Varamenn

Andrés Sigmundsson Elsa Valgeirsdóttir

Guðrún Erlingsdóttir Ásta Halldórsdóttir

Elliði Vignisson Björn Elíasson

Arnar Sigurmundsson

Stefán Jónasson

Bergur Elías Ágústsson

Lúðvík Bergvinsson

- Liðir 3, 5, 9, 10 og 13 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liðir 2, 6 til 8, 11 og 12 lágu fyrir til kynningar.

i) Fundargerð fjölskylduráðs frá 18. október sl.

- Liðir 1 til 3 og 8 lágu fyrir til staðfestingar og voru þeir samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.

- Liðir 4 til 7 lágu fyrir til kynningar.

Fundi slitið.

Arnar Sigurmundsson (sign.)

Lúðvík Bergvinsson (sign.)

Guðrún Erlingsdóttir(sign.)

Stefán Jónasson (sign.)

Elliði Vignisson (sign.)

Elsa Valgeirsdóttir (sign.)

Ásta Halldórsdóttir (sign.)