Bæjarráð Vestmannaeyja nr. 2765

11.07.2005

BÆJARRÁÐ

 

2765. fundur.

 

Ár 2005, mánudaginn 11. júlí kl. 17.45 var fundur haldinn í bæjarráði Vestmannaeyja í Ráðhúsinu.

 

Mættir voru: Arnar Sigurmundsson formaður, Guðrún Erlingsdóttir, Elsa Valgeirsdóttir  og Andrés Sigmundsson áheyrnarfulltrúi og Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri.

 

Fundargerð ritaði Viktor S. Pálsson.

 

Fyrir var tekið:

  1. mál.

Gerð var grein fyrir viðræðum sem bæjarstjóri, formaður bæjarráðs, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs áttu við fulltrúa eignarhaldsfélagsins Fasteign hf. (EFF hf.) og teiknistofu Halldórs Guðmundssonar, um stærð og skipulag að nýjum leikskóla á Sólalóðinni. Á fundi hér í Eyjum þann 6. júlí sl. náðist samkomulag um að þessi nýi 100 barna leikskóli verði liðlega 800 fermetrar að stærð. Þá var  gengið frá skipulagi innandyra og staðsetningu leikskólans innan byggingareitsins á Sólalóðinni. Einnig voru Stefáni Jónassyni formanni byggingar- og skipulagsráðs og Júlíu Ólafsdóttur leikskólastjóra kynntar skipulagsuppdrættir. Samkvæmt nýrri framkvæmdaáætlun er miðað við að bygging leikskólans verði boðin út í einu lagi nú í haust og lóðarframkvæmdir nokkru síðar. Áætlað er að leikskólinn verði tilbúinn til notkunar fyrir júlí lok 2006. Bæjarráð felur bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að ganga frá nauðsynlegum samningum gagnvart EFF hf. svo hægt verði að bjóða verkið út.

 

Vestmannaeyjabær mun síðar á þessu ári hefja framkvæmdir vegna tengivegar frá Helgafellsbraut að bílastæði norðan leikskólans, eins og gert er ráð fyrir í deiliskipulagi.

 

Bæjarráð samþykkir að fela umhverfis- og framkvæmdasviði bæjarins að gæta hagsmuna Vestmannaeyjabæjar sem þjónustukaupa við byggingu hins nýja leikskóla og ganga jafnframt frá kostnaðaráætlun vegna tengivegar og bílastæða norðan leikskólans og leggja fyrir bæjarráð.

 

Með hliðsjón af framansögðu þá samþykkir bæjarráð jafnframt að fella niður umboð til byggingarnefndar um byggingu nýs leikskóla, en nefndin var samþykkt og kosin á fundi bæjarstjórnar þann 4. nóvember 2004.

 

  1. mál.

Með hliðsjón af 1. máli fundargerðarinnar og með vísan til erindis leikskólastjóra í 2. máli á fundi bæjarráðs 1. júlí sl. samþykkir bæjarráð að sameining leikskólanna og yfirstjórnar þeirra komi að fullu til framkvæmda 1. ágúst 2006, en ráðgert er að skólastjóri leikskólanna hafi aðsetur í hinum nýja leikskóla á Sóla. Starf skólastjóra leikskólanna samkvæmt nýju skipuriti verður auglýst laust til umsóknar í ársbyrjun 2006 og reiknað er með að hann muni þegar eftir ráðningu  koma að starfi verkefnisstjórnar um skóla- og æskulýðsmál og hefji síðan starf við undirbúning skólastarfs á leikskólum eigi síðar en 1. maí 2006.

 

  1. mál.

Bæjarráð ásamt menningar- og tómstundaráði Vestmannaeyjabæjar og Nýsköpunarstofu þakkar Ferðamálaráði Íslands fyrir góðan og mikilvægan stuðning við upphaf framkvæmda verkefnsins “Pompei norðursins.”

 

  1. mál.

Fyrir lá bréf frá Byggðastofnun, dags. 15. júní nk. vegna heildarmats á framkvæmd gildandi byggðaáætlunar fyrir árin 2002-2005. Fresti til að skila inn áliti hefur verið lengdur fram yfir verslunarmannahelgi.

 

Bæjarráð samþykkir að fela framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að taka saman samantekt f.h. bæjarins og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

 

  1. mál.

Fyrir lágu eftirfarandi fundargerðir:

  1. Fundargerð skólamálaráðs frá 5. júlí sl.

 

Bæjarráð samþykkir fundargerðina.

 

  1. Fundargerð menningar- og tómstundaráðs frá 30. júní sl.

Varðandi 3. mál upplýsti bæjarstjóri að unnið er að greinargerð af hálfu Nýsköpunarstofu um fyrsta áfanga verksins “Pompei norðursins” og mun hún liggja fyrir í ágústlok. Greinargerðin mun fjalla um fjármögnun, markaðssetningu og framhald verkefnisins.

 

Bæjarráð samþykkir fundargerðina.

 

Fleira ekki bókað.  Fundi slitið kl.  18.55.

 

Arnar Sigurmundsson (sign.)

Guðrún Erlingsdóttir (sign.)

Elsa Valgeirsdóttir (sign.)

Andrés Sigmundsson (sign.)

Bergur Elías Ágústsson (sign.)