Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3230

Haldinn í Ráðhúsinu,
13.02.2025 og hófst hann kl. 10:45
Fundinn sátu: Njáll Ragnarsson formaður,
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir varaformaður,
Eyþór Harðarson aðalmaður,
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Stjórn Eyglóar sat fundinn ásamt lögmanni. Þá var bæjarfulltrúum, sem ekki sitja í bæjarráði, boðið að sitja fundinn.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202207045 - Eygló eignarhaldsfélag um ljósleiðaravæðingu í Vestmannaeyjum
Stjórn Eyglóar mætti á fund bæjarráðs og fylgdi eftir tillögu sinni þess efnis að falla frá viðskiptum um sölu á Eygló og afturkalla samrunaskrá í samráði við Mílu hf. Tillagan byggir á því að ekki eru forsendur til að halda málsmeðferð áfram í því samrunamáli sem samkeppnieftirlitið hefur nú til meðferðar.
Fyrir liggur að brýn þörf er á að halda áfram uppbyggingu á fjarskiptainnviðum í Vestmannaeyjum til að tryggja öllum íbúum aðgang að háhraðatengingum. Haldi samrunamálið áfram næstu mánuði í óvissu um hver endanleg niðurstaða samkeppnisyfirvalda verður, er ljóst að tafir munu verða á frekari uppbyggingu háhraða-tenginga í Vestmannaeyjum.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu stjórnar Eyglóar um að falla frá viðskiptunum og tilkynna það samkeppniseftirliti.
Gestir:
Helga Jóhanna Harðardóttir, bæjarfulltrúi

Gestir í gegnum fjarfundarbúnað:
Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar og stjórnarmaður í Eygló
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi og stjórnarmaður í Eygló
Margrét Rós Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi
Heiðar Ásgeir Atlason, lögmaður

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:10 

Til baka Prenta
Jafnlaunavottun Learncove