Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3135

Haldinn Fundarsal að Bárustíg 15 efri hæð.,
01.09.2020 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Njáll Ragnarsson formaður,
Jóna S. Guðmundsdóttir varaformaður,
Helga Kristín Kolbeins aðalmaður,
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri,
Fundargerð ritaði: Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 201212068 - Umræða um samgöngumál
Bæjarráð kom saman í dag til þess að ræða stöðuna hjá Herjólfi ohf., eftir ákvörðun stjórnar og framkvæmdastjóra félagsins um uppsagnir á starfsfólki til þess að ráðast í endurskipulagningu félagsins.

Niðurstaða
Þann 17. ágúst sl. átti bæjarráð fund með samgönguráðherra og vegamálastjóra til að fara yfir alvarlega fjárhagsstöðu Herjólfs ohf. Á fundinum kom fram að Vestmannaeyjabær telur ríkið ekki standa við þær greiðslur sem kveðið er á um í þjónustusamningi, m.a. vegna öryggismönnunar á skipinu. Af því leiðir að framlög til félagsins eru um 200 m.kr. lægri en umræddur samningur segir til um. Mikilvægt er fyrir áframhaldandi vinnu að samgönguráðuneytið svari því sem allra fyrst hvort það hyggist standa við sínar skuldbindingar skv. þjónustusamningnum.

Að auki hefur kórónuveiran haft mikil áhrif á rekstur félagsins á þessu ári og hefur enn, enda miklar takmarkanir varðandi samgöngur á sjó. Það skapar félaginu töluverða fjárhagslega óvissu sem ekki sér fyrir endann á.

Í gær ákvað stjórn Herjólfs ohf. að grípa til sársaukafullra aðgerða með uppsögnum á starfsfólki félagsins, en með þeim aðgerðum skapast ákveðið svigrúm til þess að enduskipuleggja reksturinn á þessum óvissutímum. Mikilvægt er að ekki komi til skerðinga á ferðatíðni milli lands og Eyja, heldur verði að lágmarki boðið upp á sex ferðir á dag. Unnið verður að því að ljúka endurskipulagningu sem allra fyrst til þess að eyða þeirri óvissu sem starfsfólkið býr við.

Herjólfur og samgöngur í Landeyjahöfn eru lífæð samfélagsins í Vestmannaeyjum. Það skiptir mikilu máli að ríkið og sveitarfélagið standi saman um rekstur Herjólfs ohf., reksturinn sé sjálfbær, rekstrarumhverfi og forsendur fyrirsjánlegar, fjárveitingar samkvæmt þjónustusamningi séu tryggðar um þetta mikilvæga hagsmunamál einstaklinga og fyrirtækja í Vestmannaeyjum, sem og allra landsmanna.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með þingmönnum Suðurkjördæmis til þess að upplýsa þá um alvarlega stöðu Herjólfs ohf.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:45 

Til baka Prenta