Fundargerðir

Til baka Prenta
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 262

Haldinn Í gegnum fjarfundabúnað,
21.04.2021 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Helga Jóhanna Harðardóttir formaður,
Hrefna Jónsdóttir varaformaður,
Gísli Stefánsson aðalmaður,
Esther Bergsdóttir aðalmaður,
Hafdís Ástþórsdóttir aðalmaður,
Jón Pétursson framkvstj.sviðs, Silja Rós Guðjónsdóttir starfsmaður sviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202101039 - Sískráning barnaverndarmála 2021
Sískráning barnaverndarmála til Barnaverndarstofu fyrir mars 2021.

Niðurstaða
Í mars bárust 38 tilkynningar vegna 33 barna. Mál 32 barna voru til frekari meðferðar.
2. 200704150 - Fundargerð barnaverndar fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð
Fundargerð barnaverndar er færð í sérstaka trúnaðarmálabók

Niðurstaða
Fundargerð barnaverndar er færð í sérstaka trúnaðarmálabók. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skv. viðauka IV við bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjar nr. 991/2020.
3. 200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.

Niðurstaða
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skv. viðauka IV við bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjar nr. 991/2020.
4. 201903124 - Framtíðarskipulag og uppbygging íþróttamála í Vestmannaeyjum
Á 1545. fundi Bæjarstjórnar Vestmannaeyja var staðfestur vilji Fjölskyldu- og tómstundaráðs frá 25. mars 2019 að stofna starfshóp, með aðkomu ÍBV Héraðssambands, til að ræða framtíðarsýn í uppbyggingu, rekstri og skipulagi íþróttamála í Vestmannaeyjum.
Tilgangur starfshópsins var að koma með framtíðarsýn hvað varðar rekstur, uppbyggingu og skipulag í íþróttamálum til næstu 10 ára. Markmið starfshópsins var að leggja fram fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð tillögur um forgangsröðun verkefna, tímasetja þau og kostnaðarmeta. Það er svo hlutverk fjölskyldu- og tómstundaráðs í framhaldinu að vinna með niðurstöður og leggja fyrir bæjarstjórn tillögu um framtíðarsýn í íþróttamálum til lengri tíma.

Niðurstaða
Ráðið þakkar starfshópnum fyrir gott starf. Þar sem langt er liðið frá upphafi vinnunnar og vegna aðstæðna í samfélaginu felur ráðið framkvæmdastjóra og Íþrótta- og tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að fara yfir breytingar sem hafa orðið á þessu tímabili og gefa íþróttafélögum tækifæri á að koma með athugasemdir. Ráðið tekur svo afstöðu þegar þeirri vinnu er lokið.

Bókun frá fulltrúum D listans Gísla Stefánssyni og Esther Bergsdóttur:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna því að farið sé í samantekt sem þessa og lýsa ánægju sinni með það öfluga íþróttastarf sem Vestmannaeyjar búa yfir.
Við gerum þó athugasemd við að starfshópurinn sem fór með þetta verkefni hafi ekki haldið fundargerðir á fundum sínum. Það er hagur allra að hægt sé að skjalfesta mismunandi sýnir á verkefnin með bókunum og hefur fulltrúi okkar í hópnum gert athugasemdir við að það hafi ekki verið mögulegt.

Bókun frá E og H lista Helgu Jóhönnu Harðardóttur, Hrefnu Jónsdóttur og Hafdísi Ástþórsdóttur:
Viðkomandi hefði getið bókað í lokaorðum skýrslunnar. Hann samþykkti skýrsluna án athugasemda.
Áfangaskýrsla starfshóps um framtíðarsýn íþróttamála apríl 2021.pdf
5. 202010080 - Reglur um stuðningsþjónustu
Framhald af 7. máli 261. fundar. Drög að nýjum og endurbættum reglum um stuðningsþjónustu (áður félagsleg heimaþjónusta)

Niðurstaða
Ráðið samþykkir umræddar reglur um stuðningsþjónustu.
6. 201206115 - Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)
Framhald af 9. máli 261. fundar. Lögð fram drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) fyrir þjónustusvæði Vestmannaeyjar.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir umræddar reglur um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) fyrir þjónustusvæði Vestmannaeyja.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:20 

Til baka Prenta