Fundargerðir

Til baka Prenta
Fræðsluráð - 335

Haldinn í fundarsal Ráðhúss,
09.10.2020 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Arna Huld Sigurðardóttir formaður,
Aníta Jóhannsdóttir aðalmaður,
Silja Rós Guðjónsdóttir aðalmaður,
Ingólfur Jóhannesson aðalmaður,
Rannveig Ísfjörð 2. varamaður,
Jón Pétursson framkvstj.sviðs, Drífa Gunnarsdóttir starfsmaður sviðs, Anna Rós Hallgrímsdóttir starfsmaður sviðs, Jarl Sigurgeirsson starfsmaður sviðs, Bjarney Magnúsdóttir starfsmaður sviðs, Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir starfsmaður sviðs, Helga Björk Ólafsdóttir , Kolbrún Matthíasdóttir .
Fundargerð ritaði: Drífa Gunnarsdóttir, fræðslufulltrúi


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 201304035 - Skóladagatal. Samræmd dagatöl skóla og frístundavers.
Framhald af 6. máli 334. fundar fræðsluráðs þann 7. október 2020. Tillaga að nýjum starfsdegi leikskóla og frístundavers.
Frestun starfsdags og vetrarleyfis GRV til umræðu.

Niðurstaða
Fræðsluráð samþykkir að fresta starfsdegi leikskólanna sem á að vera skv. skóladagatali 16. október nk. til 27. nóvember.

Í ljósi aðstæðna hefur fræðsluráð haft til umræðu hvort ástæða sé til að endurskoða tímasetningu á komandi starfsdegi og vetrarleyfi GRV.
Eftir að hafa kannað afstöðu starfsmanna GRV, foreldrafélags og eldri nemenda til frestunar starfsdags og vetrarleyfis er ljóst að meirihlutinn vill halda skóladagatalinu óbreyttu en foreldrafélagið hefur þó skilning á því ef færa þarf til starfsdaginn.

Skóladagatal grunnskólans helst óbreytt. Ráðið hefur fulla trú á að allir fari eftir tilmælum frá almannavörnum, hugi að sóttvörnum og takmarki ferðalög eins og kostur er.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:40 

Til baka Prenta