• 6. mars 2021, 22:00, Eldheimar, 3000

Þögnin rofin ! Tónleikar

Fyrstu tónleikar ársins í Vestmannaeyjum verða laugardaginn 6. mars n.k. í Eldheimum.

Vísnatónlist, þjóðlög, íslensk, sænsk og ensk verða á dagskránni. Ástsæl og vinsæl ljóð og vísur eftir Davíð Stefánsson, Halldór Laxness, Cornelis Vreesvijk, Megas, Jón Múla og Jónas Árnasyni og fleiri verða sungin og leikin.
 
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 stundvíslega. Í ljósi aðstæðna er takmarkað framboð miða á boðstólum og þess vegna er fólk beðið að panta borð og miða fyrirfram í síma 4882700. Miðaverð 3000kr.
 
Flytjendur
Helga Jónsdóttir
Árnór Hermannsson
Eggert Jóhannsson
Magnús R. Einarsson
 
Helga og Arnór eru Vestmannaeyingum að góðu kunn í gegnum tíðina fyrir söng og hljóðfæraleik. Eggert Jóhannsson er helsti túlkandi sænskrar vísnahefðar á Íslandi og hefur meðal annars leikið á frægum vísnahátíðum í Svíþjóð. Magnús R. Einarsson gítarleikari verður þeim trausts og halds á tónleikunum, en hann hefur leikið með mörgum helstu hljómsveitum landsins í gegnum tíðina.