18. júní 2025

Víkin 5 ára deild

Leikskólakennari/leiðbeinandi, tilfallandi afleysingar - Umsóknarfrestur er til 27. júní nk.

Auglýst er eftir leikskólakennara/ leiðbeinanda til starfa í Víkina 5 ára deild í Hamarskóla veturinn 2025-2026. Um er að ræða starf í tilfallandi afleysingum. Viðkomandi þarf að geta komið til vinnu með litlum fyrirvara og eftir þörfum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun æskileg.
  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg.
  • Áhugi á vinnu með börnum nauðsynleg.
  • Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum og hafa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi.
  • Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
  • Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslenskri tungu.

Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
  • Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.

Umsóknarfrestur er til 27. júní nk.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Þorsteinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í tölvupósti. Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti merkt viðkomandi starfi sem sótt er um.

Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Afrit af prófskírteini og leyfisbréfi þurfa að fylgja umsókn.

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.


Jafnlaunavottun Learncove