Úthlutun styrkja til miðlunar menningarefnis á landsbyggðinni 2005
Í júní auglýsti menntamálaráðuneytið styrki til skráningar og miðlunar menningarefnis á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir sem hluti af átaki um menntun og menningu á landsbyggðinni, sem er samstarfsverkefni menntamála- og iðnað
Í júní auglýsti menntamálaráðuneytið styrki til skráningar og miðlunar menningarefnis á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir sem hluti af átaki um menntun og menningu á landsbyggðinni, sem er samstarfsverkefni menntamála- og iðnaðarráðuneytisins í tengslum við byggðaáætlun. Til ráðstöfunar voru tíu milljónir. Alls bárust 54 umsóknir og sótt var um rúmlega 80 milljónir.
Eftirtalin verkefni hlutu styrki:
- Háskólinn á Hólum og Byggðasafn Skagfirðinga, Ragnheiður Traustadóttir, Upplýsingabrunnurinn Greipur - miðlun fornleifarannsókna í Skagafirði: kr. 1.000.000
- Uppsveitir Árnessýslu, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Þjórsárdalur - minjar frá Söguöld: kr. 1.000.000
- Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Gagnvirkt fræðsluforrit á neti um Gísla sögu Súrssonar: kr. 700.000
- Fjölbrautarskóli Vesturlands og Bókaútgáfan Bjartur, Hjálmaklettur - kennsluvefur um Egilssögu: kr. 700.000
- Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti, Upplýsinga- og fræðsluvefurinn Latrabjarg.is: kr. 700.000
- Skriðuklaustursrannsóknir, Tölvutæk endurgerð miðaldaklausturs á Skriðu í Fljótsdal: kr. 700.000
- Nýsköpunarstofa Vestmannaeyja, Horfinn heimur - rafrænt gosminjasafn: kr. 700.000
- Grettistak ses., Á Grettisslóð, skráning upplýsinga um fornleifar, örnefni og sögustaði sem tengjast Grettissögu: kr. 700.000
- Steinasafn Petru, Austurbyggð, Skráning á steinasafni Petru: kr. 700.000
- Safnahúsið á Húsavík, Þingeyskur sögugrunnur - kortagerðarverkefni: kr. 500.000
- Fornleifafræðistofan, Sagan í sandinum, nunnuklaustrið á Kirkjubæ: kr. 500.000
- Uppsveitir Árnessýslu, Skúli Sæland, Sögubrot síðustu alda, menningarsaga uppsveita Árnessýslu: kr. 500.000
- Fornleifavernd ríkisins, Sauðárkróki, Stöðlun fornleifaskráningar á Íslandi: kr. 500.000
- Menningarsetrið að Útskálum, Vefsjá með prestsetrum og kirkjum: kr. 500.000
- Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, Gerð vefsíðu fyrir safnið: kr. 300.000
- Steingrímur Kristinsson, sksiglo.is, Ljósmyndasafn Steingríms: kr. 300.000
Af vef mrn.
Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyja.
Af vef mr.