Umhverfismennt á hverju strái - málþing.
Umhverfisfræðsluráð boðar til málþings um umhverfismennt í námskrá grunnskólans, fimmtudaginn 10. mars kl. 13:00 - 16:30, í Norræna húsinu. Málþingið er haldið í tilefni af endurskoðun námskrár og er ætla
Umhverfisfræðsluráð boðar til málþings um umhverfismennt í námskrá grunnskólans, fimmtudaginn 10. mars kl. 13:00 - 16:30, í Norræna húsinu. Málþingið er haldið í tilefni af endurskoðun námskrár og er ætlað að skapa umræðu um stöðu og framtíð umhverfismenntar í námskrá grunnskólans.
Dagskrá: Opnunarávarp: Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu
- Endurskoðun aðalnámsskrár og áherslur í umhverfismennt
Sigurjón Mýrdal deildarstjóri námskrárdeildar menntamálaráðuneytisins - Umhverfismennt: Alþjóðlegar áherslur og áherslur í aðalnámskrá
Margrét Júlía Rafnsdóttir meistari í umhverfisfræðum og grunnskólakennari - Sjálfbær þróun, staðardagskrá 21 og umhverfismennt
- að læra af því sem stendur manni næst -
Katrín Jakobsdóttir formaður Umhverfisráðs Reykjavíkurborgar - Kaffihlé: Umhverfisfræðsluráð býður upp á kaffi og meðlæti
- Viðhorf grunnskólakennara til umhverfismenntar
Fulltrúi Félags grunnskólakennara - Framtíðarsýn á umhverfismennt í grunnskólum
Sigrún Helgadóttir, verkefnisstjóri Grænskólaverkefnisins
Fundarstjóri: Ingibjörg Ólafsdóttir, formaður Umhverfisfræðsluráðs
Lokaorð: Steinn Kárason fulltrúi menntamálaráðuneytisins í Umhverfisfræðsluráði.
Boðið verður upp á fyrirspurnir og umræður á milli erindanna.
Vinsamlega skráið þátttöku hér eða í síma 545 8600 í
síðasta lagi miðvikudaginn 9. mars. Enginn aðgangseyrir.
Allir velkomnir Umhverfisfræðsluráð.
Af vef Umhverfisráðuneytisins
Fræðslu-og menningarsvið Vestmannaeyja.