Tilnefningar til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs óskast
Veistu af áhugaverðum verkefnum í GRV, leikskólum, Tónlistarskóla eða Frístundaveri sem þú vilt vekja athugli á?
Hægt er að tilnefna kennara, kennarahópa, leiðbeinendur og starfsfólk í leikskólum, Grunnskóla Vestmannaeyja, Tónlistarskóla og Frístund.
Allir geta tilnefnt til verðlaunanna, s.s. foreldrar, ömmur og afar, nemendur, stofnanir, samtök, starfsfólk Vestmannaeyjabæjar, þ.m.t. starfsfólk í leikskólum, grunnskóla, Tónlistarskóla og Frístund.
Valin verða þrjú verkefni sem fá verðlaun og eru það verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni.
Lokadagur til að skila inn ábendingum er 17. mars 2025
Eyðublað fyrir tilnefningu er inn á Mínar síður (veljið umsóknir – Fræðslumál)