5. febrúar 2024

Tilnefningar til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs óskast

Veistu af áhugaverðum verkefnum í GRV, leikskólum, Tónlistarskóla eða Frístundaveri sem þú vilt vekja athugli á?

Hægt er að tilnefna kennara, kennarahópa, leiðbeinendur og starfsfólk í leikskólum, Grunnskóla Vestmannaeyja, Tónlistarskóla og Frístund.

Allir geta tilnefnt til verðlaunanna, s.s. foreldrar, ömmur og afar, nemendur, stofnanir, samtök, starfsfólk Vestmannaeyjabæjar, þ.m.t. starfsfólk í leikskólum, grunnskóla, Tónlistarskóla og Frístund.

Valin verða þrjú verkefni sem fá verðlaun og eru það verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni.


Skila þarf inn ábendingum fyrir 19. mars 2024

Eyðublað fyrir tilnefningu er inn á Mínar síður


Jafnlaunavottun Learncove