Tilkynning frá Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja
Varðandi World Class
Frá og með mánudeginum 24. nóvember mun World Class opna kl. 06:15.
Breytingin er liður í því að bæta þjónustu við íbúa og koma betur til móts við þarfir þeirra.
Jafnframt hefjast framkvæmdir við fyrirhugaða stækkun á núverandi æfingasal.
Gera má ráð fyrir einhverju raski á meðan á framkvæmdum stendur, en unnið verður að því að halda truflun í lágmarki.
Um er að ræða verulegar endurbætur þar sem salurinn verður nær tvöfaldaður að stærð.
Stækkunin mun skapa aukið rými fyrir fleiri tæki og bætta aðstöðu sem ekki hefur verið unnt að koma fyrir hingað til.

