11. apríl 2005

Sýnum unga fólkinu áhuga. Komum og hlustum á upplestur nemenda í 7. bekk

Lokahátíð  Stóru  upplestrarkeppninnar  í Vestmannaeyjum  árið 2005 verður haldin í Félagsheimilinu við Heiðarveg mánudaginn 11. apríl klukkan 15:30. Nemendur 7. bekkja í grunnskólunum  í Eyjum

Lokahátíð  Stóru  upplestrarkeppninnar  í Vestmannaeyjum  árið 2005 verður haldin í Félagsheimilinu við Heiðarveg mánudaginn 11. apríl klukkan 15:30.

Nemendur 7. bekkja í grunnskólunum  í Eyjum hafa unnið að undirbúningi  lokahátíðarinnar  frá því í haust.  Þeir hafa æft upplestur undir stjórn kennara sinna og  munu sex nemendur úr hvorum skóla taka þátt í lokahátíðinni.  Þeir  munu lesa upp úr verkum þekktra íslenskra  höfunda, bæði bókmenntatexta og ljóð.

Bæjarbúar eru eindregið hvattir til að fjölmenna  á lokahátíðina, því  hér er um að ræða ánægjulegan viðburð þar sem ungt fólk kemur fram  og sýnir á sér sínar bestu hliðar í framkomu, upplestri og framsögn. 

Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyjabæjar


Jafnlaunavottun Learncove