Sumarstörf
Sumarstörf hjá Vestmannaeyjabæ
Unglingavinnan :
Flokksstjóra vantar í sumar, um er að ræða tímabilið 1. júní til 13. ágúst. Æskilegt er að umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára og hafi reynslu í að vinna með börnum og unglingum.
Skólagarðar:
Leiðbeinanda vantar í sumar, um er að ræða 50% starf eftir hádegi, tímabilið 1. júní til 1. ágúst. Æskilegt er að umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára, hafi reynslu í að vinna með börnum og hafi græna fingur.
Gæsluvöllur:
Félags- og fjölskyldusvið Vestmannaeyjabæjar óskar eftir starfsfólki til sumarstarfa á Gæsluvellinum við Miðstræti. Um er að ræða tvö 60% stöðugildi eftir hádegi, annað í forstöðu. Gæsluvöllurinn verður opinn frá 17. maí til 31. ágúst.
Æskilegt er að umsækjendur séu eldri en 18 ára og hafi reynslu af vinnu með börnum.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2004
Umsóknareyðublöð fást í þjónustuveri á miðhæð Ráðhúss og óskast umsóknum skilað þangað fyrir 30. apríl n.k.