Styrkur til Noregsfarar og styrkur úr Grænlandssjóði.
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er tilgangur hans "að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli?. Ekki eru veittir styrkir til þátttöku í fjölþjóðlegum mótum, þ.m.t. samnorrænum sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndum, og ekki er úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.
Í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur beri sjálfir dvalarkostnað í Noregi.
Hér með er auglýst eftir umsóknum frá aðilum sem uppfylla framangreind skilyrði. Í umsókn skal getið um hvenær ferð verður farin, fjölda þátttakenda, tilgang fararinnar og tengilið í Noregi. Auk þess skal tilgreina þá fjárhæð, sem farið er fram á.
Umsóknum óskast beint til stjórnar sjóðsins og sendar forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík, fyrir 13. apríl 2005. Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á vefsíðu forsætisráðuneytisins, forsaetisraduneyti.is.
Stjórn Grænlandssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2005.
Grænlandssjóður er starfræktur í samræmi við lög nr. 102/1980 til að veita styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra
málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála, er eflt geta samskipti Grænlendinga og Íslendinga.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna sem uppfylla framangreind skilyrði.
Umsóknum óskast beint til stjórnar Grænlandssjóðs og sendar forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, IS-150 Reykjavík, fyrir 20. apríl 2005. Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á vefsíðu forsætisráðuneytisins, forsaetisraduneyti.is.
Í forsætisráðuneytinu, 7. mars 2005.
Fræðslu-og menningarsvið Vestmannaeyjabæjar.