Styrkir til handritarannsókna í Kaupmannahöfn
Dönsk stjórnvöld veita íslenskum fræðimanni styrk til handritarannsókna við Stofnun Árna Magnússonar (Det Arnamagnæanske Institut) í Kaupmannahöfn. Styrkurinn veitist til allt að tólf mánaða dvalar en miðast þó að jafnaði við styttri dvöl. Hann nemur nú 20.000 dönskum krónum á mánuði, auk ferðakostnaðar.
Styrkur Árna Magnússonar (Det Arnamagnæanske Stipendium) Sjóðurinn Det Arnamagnæanske Legat hefur það verkefni að veita íslenskum ríkisborgurum styrk til rannsókna í Árnasafni eða öðrum söfnum í Kaupmannahöfn. Styrkir eru veittir námsmönnum og kandídötum sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á norrænni tungu, sögu eða bókmenntum að vænta megi að þeir inni af hendi verk í þessum greinum, sem þyki skara fram úr.
Umsóknarfrestur um ofangreinda styrki á árinu 2004 er til hádegis þann 22. nóvember næstkomandi. Umsóknir ber að stíla til ritara Árnanefndar (Den Arnamagnæanske Kommission) í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um styrkina og tilhögun umsókna fást í menntamálaráðuneytinu, Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, Stofnun Sigurðar Nordals og á skrifstofu heimspekideildar Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar:
Den Arnamagnæanske kommission - Københavns Universitet.
Styrkur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn. Ríkisstyrkur Árnastofnuna í Kaupmannahöfn fyrir árið 2005 er laus til umsóknar. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.
Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar. Styrkurinn er þetta árið um 20.000 danskar krónur á mánuði, auk ferðakostnaðar, og má veit aumsækjanda í allt að tólf mánuði. Að jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1 - 3 mánuði.
Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um árangur sinn af rannsóknarverkefni ásamt meðmælum, og einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni stendur. Umsóknir ber að stíla til ritara Den Arnamagnæanske Kommission, prófessor, dr. phil. Jonna Louis-jensen, og senda til overassistent John Tietze, Den Arnamægnæanske Kommission, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, svo tímanlega að þær séu komnar viðtakanda í hendur fyrir kl. 12, 22. nóvember 2004.
Det Arnamagnæanske Stipendium. Det Arnamagnæanske Legat, sem hefur það verkefni að veita íslenskum ríkisborgurum styrk til rannsókna í Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling (Árnasafni) eða í öðrum samsvarandi söfnum í Kaupmannahöfn, auglýsir hér með styrk fyrir árið 2005 lausan til umsóknar.
Styrkurinn sem er greiddur út í einu eða skipt í minni upphæðir er veittur námsmönnum og kandídötum sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á norrænni eða íslenskri tungu, sögu eða bókmenntum, að af þeim megi vænta meiri afreka en almennt gerist í þessum greinum eða í einhverri þeirra.
Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinargerð um árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði eftir næstu áramót.
Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum, og einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til ritara Den Arnamagnæanske Kommission, prófessor, dr. phil. Jonna Louis-jensen, og senda til overassistent John Tietze, Den Arnamægnæanske Kommission, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, svo tímanlega að þær séu komnar viðtakanda í hendur fyrir kl. 12, 22. nóvember 2004.
Umsókn um báða styrkinga.
Ef umsækjandi óskar þess að umsókn hans verði metin styrkhæf úr báðum þessum sjóðum skal hann geta þess. Ekki er ætlast til að tvær umsóknir séu skrifaðar, sín um hvorn styrkinn.
Af vef menntamálaráðuneytisins
Fræðslu- og menningarsvið Vestm.