Stórkostlegir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Ótrúleg upplifun að hlýða á einleikarann Lience Cirene, sem hreint út sagt lék af hreinni snilld og syrpa Oddgeirs í útsetningu Magnúsar Ingimarssonar snart marga strengi.
Um 100 manns mættu á tónleikana í Höllinni í gær, rl. 30 fleiri en hljómsveitarmeðlimir. Synd að ekki skyldu fleiri sjá sér fært að mæta. Það er mikið fyrirtæki að fá heila sinfóníuhljómsveit hingað til Eyja, og viljum við sérstaklega þakka Helgu Hauksdóttur framkvæmdastjóra hljómsveitarinnar að þessir tónleikar urðu að veruleika.
Hljómsveitin kom með tveim Fokker flugvélum upp úr hádegi. Framkvæmdastjóri fræðslu- og menningarsviðs ásamt menningarfulltrúa tóku á móti þeim á flugvellinum. Þaðan var haldið með hljómsveitarmeðlimi á tveim rútum í útsýnis- og kynnisferð um Heimaey. Að henni lokinni bauð Vestmannaeyjabær hljómsveitinni til kaffihlaðborðs í Höllinni þar sem framkvæmdastjóri afhenti Helgu Hauksdóttur framkvæmdastjóra SÍ, hljómsveitarstjóranum Owain Arwel Hughes og einleikaranum Liene Circene bækur og hljómdisk að gjöf. Helga Hauksdóttir bað okkur skila góðum kveðjum og þakklæti til bæjarbúa og yfirvalda fyrir gestrisni og góðar mótttökur. Sömueliðis hljómsveitarstjórinn og einleikarinn. Hluti af hljómsveitinni kom hingað 1997 þar sem hún lék með kórum héðan undir stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar. Fyrst mun sinfónían hafa komið hingað 1956 að ég best veit.
Á tónleikunum stóð einleikur lettneska píanóleikarans Liene Circene uppúr. Tær snilld. Hún vakti gríðarlega athygli fyrir frammistöðu sína á tónleikum í Salnum í Kópavogi. Jónas Sen gagnrýnandi Morgunblaðsins sagði að leikur hennar hefði verið "einhver mesta listræna opinberun á íslensku tónleikasviði í háa herrans tíð.? Hann staðhæfði að hún væri "einhver besti píanóleikari sem hér hefur komið fram? Og ég er viss um að margir sem hlýddu á hana í gær eru sama sinnis. Til stóð að aðalhljómsveitarstjóri SÍ, Rumon Gamba stjórnaði, en hann veiktist skyndilega í síðustu viku og hljóp velski hljómsveitarstjórinn Owain Arwel Hughes í skarðið.
Dagskráin er hér fyrir neðan og til gamans má geta þess að Helga Þórarinsdóttir fiðluleikari sagði mér eftir á að syrpa Oddgeirs hefði aldrei lifnað eins hressilega hjá hljómsveitinni og á þessum tónleikum. Samspil salar og sveitar var þvílíkur.
Dagskrá tónleikanna 19. mars Höllin í Vestmannaeyjum klukkan 17.00
Hljómsveitarstjóri: Owain Arwel Hughes
Einleikari: Liene Circene
Engelbert Humperdinck: Forleikurinn að óperunni Hans og Gréta
Anatoly Liadov: Töfravatnið
Franz Liszt: Dauðadans fyrir píanó og hljómsveit
Richard Wagner: Skógarþytur úr óperunni Siegfried
Oddgeir Kristjánsson: Lagasyrpa (úts. Magnús Ingimarsson)
Pjotr Tsjajkovskíj: 1. 3. og 5. þáttur úr ballettsvítunni Þyrnirós
Við hjá Vestmannaeyjabæ þökkum þessum góðu gestum kærlega fyrir komuna og eftirminnanlega tónleika og stefnum að því að fá sveitina að tveim árum liðnum og vonandi geta þau þá stoppað lengur og etv. unnið eitthvað með nemendum Tónlistarskólans og öðru tónlistarfólki bæjarins.
Andrés Sigurvinsson framkvæmdastjóri fræðslu- og menningarsviðs