23. apríl 2024

Stóri plokkdagurinn - Hreinsunardagur á Heimaey 2024

Stóri plokkdagurinn verður haldinn með prompi og prakt um allt land sunnudaginn 28. apríl 2024.

Í tilefni dagsins verður hreinsunardagur á Heimaey. Sameinumst um að hreinsa náttúruna um leið og við gerum umhverfið okkar fallegt fyrir viðburði, gesti og útiveru komandi sumars.

Dagurinn byrjar kl. 11.00 á Stakkagerðistúni þar sem pokum og plokktöngum (fyrir fyrstu sem koma) verður úthlutað. Klukkan 12.30 verður svo grillveisla í boði Bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar á sama stað.

Dagur þessi er fjölskyldudagur þar sem allir – mamma, pabbi, amma, afi, og krakkarnir – sameinast um að gera Heimaey enn fallegri.

Undanfarin ár hafa hópar og félög tekið að sér ákveðin svæði til að hreinsa, sjá meðfylgjandi mynd.

090421_hreinsunardagar_felog-_2024-002-

Tvö svæði eru merkt laus og er leitað að hópi sem er tilbúinn að taka að sér þessi svæði í ár en annars er bent á svæði og önnur opin svæði fyrir þá sem koma að plokka á eigin vegum.

Bent er á að hafa samband á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is til að fá úthlutað svæði.

Einnig er skorað á íbúa og fyrirtæki að þeir hreinsi lóðir sínar og nærumhverfi. Þannig gerum við í sameiningu bæinn okkar hreinan og fagran fyrir sumarið.

Helstu PLOKKTRIXIN Í BÓKINNI

· Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt. Búa jafnvel til viðburð með góðum hópi.

· Gott er að vera með ruslapoka, hanska, plokktöng og bakpoka undir aukapoka.

· Klæða sig eftir aðstæðum.

· Koma afrakstrinum á viðeigandi stofnun.

· Senda tölvupóst á sveitarfélagið sitt og láta sækja ef magnið er mikið.

· Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.

· Vera í góðu skapi og helst með einhverjum skemmtilegum.

Með fyrir fram þökk,

Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar