Starfsmaður í þjónustuver Ráðhús Vestmannaeyja
Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsmanni í 50% stöðu við þjónustuver Ráðhússins. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af almennum skrifstofustörfum. Viðkomandi þarf að hafa góða og lipra þjónustulund sem og færni í mannlegum samskiptum.
Þekking á One Systems skjalakerfinu, Navision bókhalds- og launakerfinu og tímaskráningakerfinu Vinnustund er kostur.
Laun skv. kjarasamningi STAVEY og launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar gefur Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri Stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 488-2000 eða á netfangið rut@vestmannaeyjar.is.
Umsóknum skal skilað fyrir 10. mars n.k. í Ráðhús Vestmannaeyja, Kirkjuvegi 50, 900 Vestmannaeyjum merkt STARFSMAÐUR í þJÓNUSTUVER RÁÐHÚSS. Einnig er hægt að skila umsóknum á netfangið rut@vestmannaeyjar.is