23. september 2025

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk

Vestmannaeyjabær óskar eftir starfsmanni á heimili fyrir fatlað fólk

Um er að ræða 75% starfshlutfall þar sem unnið er á sólahringsvöktum alla virka daga, á kvöldin og aðra hvora helgi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. desember 2025. 

Hlutverk Þjónustukjarnans er að veita íbúum stuðning og leiðsögn í öllu er varðar persónulega hagi og heimilisrekstur svo sem þrifnað, þvott, matreiðslu, innkaup og annað samkvæmt starfslýsingu. Einnig skal þeim veittur stuðningur í tómstundastarfi og fá fylgd s.s. til lækna, í klippingu o.s.frv.

Helstu verkefni:

  • Starfsmaður sér um almenna umönnun skjólstæðinga vegna líkamlegra og félagslegra þarfa eftir því sem við á. Nálægð við þjónustuþega er mikil.
  • Önnur verkefni eru heimilisstörf s.s. þvottar, þrif, matargerð o.fl.

Hæfniskröfur:

  • Reynslu og áhuga á að vinna með fötluðu fólki kostur.
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund.
  • Frumkvæði og samviskusemi.
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.

____________________________________________________________________________

Umsóknarfrestur er til 7. október

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Sigurjónsdóttir í síma 4811211 / 6903497 og ingibjorg@vestmannaeyjar.is

Vestmannaeyjabær hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið óháð kyni. Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamning Sambands íslenskra sveitafélaga. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.


Jafnlaunavottun Learncove