4. júlí 2024

Starfsfólk óskast í Frístund Hamarsskóla næsta vetur

Frístundaverið óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda fyrir veturinn 2024-2025.

Um er að ræða tvær til þrjár stöður frístundaleiðbeinanda.

Starfsmenn þurfa að geta hafið störf ekki seinna en 15. ágúst.

Frístundarverið er staðsett í Hamarsskóla og er starfrækt eftir hádegi alla virka skóladaga frá því að skóla lýkur og til 16:30. Einnig er opið á Frístund flesta daga þegar skólinn er lokaður frá 07:45-16:30. Starfsmenn koma til með að vinna í sumarfjörinu í sumrin.

Frístundaleiðbeinandi

Frístundaverið í Hamarsskóla óskar eftir því að ráða frístundaleiðbeinanda í 37,5 – 50% stöðu. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum. Frá 13:00-16:00/16:30. Á sumrin vinnur starfsmaður í sumarfjörinu frá 09:00-16:00 á daginn og hækkar starfshlutfall eftir því.

Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Helstu verkefni

  • Vinna með börnum
  • Almenn umönnun barna
  • Fylgd á íþróttaæfingar
  • Hjálpar til að móta og framvæma dagskrá
  • Aðstoð við síðdegishressing
  • Vinna með börnum

____________________________________________________________________________

Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda.

Umsóknarfrestur er til 20. júlí. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun miðast við og eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda.

Umsókn sendist á annaros@grv.is og nánari upplýsingar um starfið má nálgast hjá Sigurleifu Kristmannsdóttur umsjónakonu frístundar sigurleif@grv.is

Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ferilskrá og rökstuðningur af hverju viðkomandi sækist eftir starfinu.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.


Jafnlaunavottun Learncove