21. nóvember 2023

Staða deildarstjóra í Kirkjugerði

Leikskólinn Kirkjugerði óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan deildarstjóra í 100% starf frá og með 15. febrúar 2024.

Kennarar í Félagi leikskólakennara hafa kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir kennarar taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrafrí grunnskóla er, í dymbilviku og með lengra sumarfríi, samtals 21,9 dagar á hverju skólaári. Tekið er neysluhlé einu sinni á dag.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Sérhæfing á leikskólastigi eða reynsla af deildarstjórn í leikskólastarfi æskileg.
  • Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum og hafa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð

Helstu verkefni:

Uppeldi og menntun:

  • Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun barnanna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi.

Stjórnun og skipulagning:

  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar.
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur deildarstjóra.

Foreldrasamvinna:

  • Ber ábyrgð á allri foreldrasamvinnu.

__________________________________________________________________________

 ATH. Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Umsókn, ásamt afriti af leyfisbréfi og ferilskrá, skal senda til leikskólastjóra á netfangið eyja@vestmannaeyjar.is

Frekari upplýsingar gefur Eyja Bryngeirsdóttir skólastjóri Kirkjugerðis í síma 488-2280.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Við hvetjum alla áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknarfrestur er til og með 04.12.2023


Jafnlaunavottun Learncove