Sparkvöllur við Hamarsskólann, fyrsta skóflustungan
Ákveðið hefur verið að setja sparkvöll við Hamarsskólann og var fyrsta skóflustungan tekin á laugardaginn, degi skólans. Tvö ungmenni sáu um verkið undir lúðrablæstri ungmenna, þau Sara Rós Einarsdóttir og Ólafur Vignir Magnússon. Völlurinn á að v
Ákveðið hefur verið að setja sparkvöll við Hamarsskólann og var fyrsta skóflustungan tekin á laugardaginn, degi skólans. Tvö ungmenni sáu um verkið undir lúðrablæstri ungmenna, þau Sara Rós Einarsdóttir og Ólafur Vignir Magnússon. Völlurinn á að vera tilbúinn áður en skólahald hefst að afloknu sumarleyfi. Verkefni þetta er unnið í samstarfi bæjarins við Knattspyrnusamband Íslands. Við athöfnina á laugardaginn afhenti Ólafur Elísson sparisjóðsstjóri, 2 milljónir króna sem stuðning Sparisjóðs Vestmannaeyja við byggingu sparkvallanna við Barnaskóla og Hamarsskóla. Framkvæmd verksins verður í höndum fyrirtækisins Einar og Guðjón s.f.
Umhverfis- og framkvæmdasvið.