18. maí 2022

Skemmtilegur fræðslufundur um lykilinn að langlífi

Fjölþætt heilsuefling í Vestmannaeyjum 65+ (Janusarverkefnið) bauð þátttakendum framhaldshópsins og gestum til fræðslufundar í gær.

Helga Arnardóttir dagskrágerðarkona hélt fróðlegan og skemmtilegan fyrirlestur sem ber nafnið: „Lifum lengur, hver er lykilinn að langlífi?“.

Helga leitaði út fyrir landsteinana við rannsókn á langlífi í vönduðum heimildaþáttum um heilbrigt líferni. Hún heimsótti langlífustu svæði heims sem kallast Blue Zone eða bláu svæðin. Fundurinn var vel sóttur og voru þátttakendendur mjög ánægðir með fróðleikinn sem eftir sat.

Fræðsluerindi um heilsutengda þætti er hluti af verkefninu Fjölþætt heilsuefling í Vestmannaeyjum 65+. Fræðslan er hugsuð til að styðja við heilsutengdar forvarnir og auka vægi heilsulæsis og sjálfbærni.

Fjölþætt heilsuefling í Vestmannaeyjum 65+ er markviss heilsurækt fyrir eldri einstaklinga (65 ára og eldri) í samstarfi við dr. Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðing og lektor við Háskóla Íslands. Hægt er að lesa um verkefnið og sækja um þátttöku á heimasíðu Janus heilsuefling.