Rannveig Ísfjörð ráðin byggingarfulltrúi
Vestmannaeyjabær auglýsti þann 4. desember á síðasta ári laust til umsóknar starf byggingarfulltrúa á tæknideild. Umsóknarfrestur var 23. desember og barst ein umsókn um starfið
Rannveig lauk B.Sc gráðu í byggingartæknifræði á sviði framkvæmda og lagna frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012 og M.Sc gráðu í byggingarverkfræði með sérhæfingu í framkvæmdastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2015. Einnig útskrifaðist hún úr APME verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018 og lauk D vottun í verkefnastjórnun á sama tíma (IPMA).
Rannveig starfaði síðast hjá TPZ sem byggingarverkfræðingur, í alhliða hönnun húsa, skipulagsuppdráttum, aðaluppdráttum og séruppdráttum byggingarnefndarteikninga. Einnig sinnti hún framkvæmda eftirliti og aðal- og séruppdráttum á sviði burðarþols og lagna. Áður starfaði Rannveig sem byggingarverkfræðingur hjá Mannvit á sviði mannvirkja og umhverfis.
Rannveig er 38 ára að aldri og er gift Pálma Harðarsyni, saman eiga þau 4 börn.
Vestmannaeyjabær býður Rannveigu velkomna til starfa, en hún mun hefja störf á næstunni.