22. júní 2005

Nýsköpun 2005

Samkeppni um viðskiptaáætlanir, Nýsköpun 2005, er nú haldin í fimmta skiptið. Það kostar ekkert að vera með, en hefur ýmsa kosti í för með sér. Þannig fá innsendar viðskiptaáætlanir ítarlega umsögn sérfræðinga, hægt er að vinna til veglegra pening

Samkeppni um viðskiptaáætlanir, Nýsköpun 2005, er nú haldin í fimmta skiptið. Það kostar ekkert að vera með, en hefur ýmsa kosti í för með sér. Þannig fá innsendar viðskiptaáætlanir ítarlega umsögn sérfræðinga, hægt er að vinna til veglegra peningaverðlauna og síðan er gert ráð fyrir að valin verkefni fái ákveðinn tæknilegan stuðning við vöruþróun hjá Iðntæknistofnun.

Sérstakt leiðbeiningahefti um gerð viðskiptaáætlana er hægt að fá sent að kostnaðarlausu en einnig er hægt að nálgast heftið og margvísleg önnur gögn á www.nyskopun.is eða senda tölvupóst á nyskopun@nyskopun.is.

Nýsköpunarstofa Vestmannaeyja veitir einnig aðstoð og frekari upplýsingar við gerð viðskiptaáæltana fyrir þessa keppni.

Nýsköpunarstofa Vestmannaeyja.


Jafnlaunavottun Learncove