29. október 2004

Nótt safnanna - Dagskrá

-Nótt safnanna verður haldin laugardaginn 13. nóvember nk.Dagskrá verður sem hér segir: Á Bókasafni Vestm. er Norræna bókasafnsvikan frá 8. nóv til 14. nóv. og tengist Nótt safnanna því.
-Nótt safnanna verður haldin laugardaginn 13. nóvember nk.

Dagskrá verður sem hér segir:
  • Á Bókasafni Vestm. er Norræna bókasafnsvikan frá 8. nóv til 14. nóv. og tengist Nótt safnanna því.
  • Kl. 14.00 á laugardeginum verður sérstök dagskrá í Bókasafninu þar sem Skólalúðrasveitin mun leika, Árni Johnsen mun lesa upp úr væntanlegri bók. Úlfar Þormóðsson les upp úr nýútkominni bók sinni.
  • Norræni skjaladagurinn er þennan dag og af því tilefni verður sýning frá Héraðsskjalasafni Vestmannaeyja í anddyri Safnahúss.  Þema sýningarinnar er árið 1974.
  • Á Listasafni Vestmannaeyja verður síðasta sýningarhelgi á verkum Júlíönu Sveinsdóttur.
  • Kl. 16.30 Helgistund í Stafkirkjunni,  Séra Þorvaldur Víðisson.
  • Kl. 17.00 Í ljósaskiptunum á  Skanssvæðinu. Arnar Sigurmundsson segja frá atburðum og mannvirkjum sem tengjast Skanssvæðinu.
  • Kaffi Skans verður einnig opið þennan eftirmiðdag.
  • Kl. 20.00 Sögur og tónlist úr gosinu á  Byggðasafninu, Andrés Sigmundsson rifjar upp viðburði  frá því í gosinu og er ekki langt síðan menn heyrðu Þjóðhátíðarlagið 1973
  • Kl. 21.00 í Júlíukrónni (krónni hans Emils Andersen) mun Sigurgeir Jónsson verða með sagnaþátt af Bjarnhéðni Elíassyni.
  • Kl. 22.00 verður dagskrá í Náttúrugripasafninu þar sem Ingvar Sigurðsson verður með erindi og myndasýningu frá Suðurskautslandinu.
  • Kl. 23.00 í Gamla Áhaldshúsinu.  Sýning Ljósmyndasafns Vestmannaeyja á einstæðum ljósmyndum Kjartans Guðmundssonar af Kötlugosinu 1918, myndum sem aldrei hafa áður verið sýndar. 
  • Kl. 23.00 Í Gamla Áhaldahúsinu verður einnig á sama tíma jazztríó Stolza & co sem mun flytja blandað jassefni, bæði frá gamla swingtímanum og frá bebop tímabilinu. Hljómsveitina skipa Erik Qvick trommur, Ólafur Stolzenwald kontrabassa, og Andrés Þór Gunnlaugsson gítar. Efnisskrá tónleika þeirra einkennist af jazzi í anda Guðna heitins Hermansen, ljúfum tónum frá miðbiki síðustu aldar.  Veitingar verða á staðnum.

Jafnlaunavottun Learncove