Mikið tjón á sumarblómunum
Mikið tjón varð á sumarblómunum í gær þar sem vindhraðinn fór upp í allt að 35 metra á sekúndu í mestu hviðunum.
Enn er hvassviðri með selturoki og verður útplöntun á sumarblómum hætt meðan veðrið er vont. Engin sumarblóm þola svona veðurfar og hefur tjrágróðurinn laskast einnig. Það er því ekkert annað í stöðunni en að fara í lagfæringar á sumarblómunum þegar veðrið skánar.