18. júní 2025

Hamarsskóli

Danskennari - Umsóknarfrestur er til 27. júní nk. - 50% starfshlutfall

Auglýst er eftir danskennara í Hamarsskóla, danskennari sinnir danskennslu í 1.-4. bekk og á Víkinni 5. ára deild. Viðkomandi þarf að geta hafið störf ekki seinna en 15. ágúst. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Í starfi danskennara eru danshæfileikar nauðsynleg undirstaða auk áhuga á tónlist og því að hvetja aðra til að þróa áfram sína færni á þessum sviðum.
  • Þolinmæði og góð félags- og samskiptafærni eru miklir kostir ásamt því að geta stjórnað nemendahópum og hvatt þá og einstaklinga áfram.
  • Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af því að kenna dans og vinna með börnum.
  • Kostur ef viðkomandi er með viðurkenningu frá Dansráði Íslands vegna starfa sem danskennari og/eða leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Danskennari þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í öflugt samstarf, með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi.
  • Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Helstu verkefni:

  • Kennir dans í 1. -4. bekk og á Víkinni leikskóladeild.
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
  • Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið Aðalnámskrár og stefnu skólans og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni.
  • Beitir fjölbreyttum kennsluaðferðum til að tryggja árangur nemenda
  • Færir einkunnir, umsagnir og mætingu inn í Mentor eftir því sem við á.
  • Tekur þátt í samstarfi við aðra kennara.
  • Situr starfsmannafundi, kennarafundi, deildarfundi, fagfundi og aðra þá fundi sem skólastjórn ætlast til að faggreinakennari taki þátt í.
  • Leysir úr vandamálum sem upp kunna að koma hjá nemendum.
  • Er í góðu sambandi við umsjónarkennara nemenda.
  • Danskennari hefur samband við foreldra ef þarf en mikilvægt er að gera það í samráði við umsjónarkennara.


Umsóknarfrestur er til 27. júní nk.

Nánari upplýsingar veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir í tölvupósti. Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti merkt viðkomandi starfi sem sótt er um.

Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Afrit af prófskírteini og leyfisbréfi þurfa að fylgja umsókn.

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.


Jafnlaunavottun Learncove