20. mars 2020

Íþróttamiðstöðin lokuð til og með 26. mars nk.

Ákveðið var í samráði við umdæmislækni sóttvarna, aðgerðastjórn og rakningarteymi, að loka Íþróttamiðstöðinni tímabundið þar sem starfsmaður hafði greinst með kórónaveirusýkingu.

Var þessi ákvörðun tekin í því skyni að hindra mögulega útbreiðslu smits. Rakningarteymið hefur nú unnið úr upplýsingum og haft hefur verið samband við starfsmenn sem þurfa að fara í 14 daga sóttkví frá því að mögulegt smit gæti hafa átt sér stað. Samkvæmt niðurstöðum rakningarteymis fara 14 af 16 starfsmönnum íþróttamiðstöðvar í sóttkví . Ekki er hægt að manna starfsemi stofnunarinnar á meðan og verður því Íþróttamiðstöðin lokuð til og með 26. mars nk.

 

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Grétar Þór Eyþórsson, forstöðumaður


Jafnlaunavottun Learncove