9. desember 2022

Íbúðir aldraðra

Vestmannaeyjabær auglýsir lausar til umsóknar íbúðir eldri borgara í Eyjahrauni og Sólhlíð. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Umsóknarfrestur er til 5. janúar nk. 

Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað.

Nauðsynlegt er að staðfesta eldri umsóknir. Frekari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í þjónustuveri Fjölskyldu -og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23. 


Jafnlaunavottun Learncove