Íbúð aldraðra
Vestmannaeyjabær auglýsir lausa íbúð til umsóknar fyrir eldri borgara að Eyjahrauna 3.
Íbúðin er 43,3 fermetrar. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ.
Umsóknir eru m.a metnar út frá félagslegum, heilsufarslegum og fjárhagslegum forsendum.
Umsóknarfrestur er til 13.október nk.
Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað. Mikilvægt er að skila inn öllum gögnum sem óskað er eftir eða nýjum gögnum hafi aðstæður breyst. Staðfesta þarf eldri umsóknir.
Frekari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í þjónustuveri Fjölskyldu -og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23.