Heimaey vinnu- og hæfingarstöð
Umsóknarfrestur er til og með 21.júlí nk.
Auglýst er eftir verkefnastjóra í velferðamálum starfa í Heimaey. Um er að ræða 75% starfshlutfall. Starfið er laust frá 1. ágúst 2025.
Verkefnastjóri í velferðamálum hefur umsjón með verkefnum og samhæfingu faglegs starfs innan hæfingar, s.s. einstaklingsþjálfun og útfærslu verkefna í hæfingu í samráði við yfirþroskaþjálfa og forstöðumanns.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfið felur í sér samræmingu faglegs starfs á þjónustueiningunni.
- Veitir leiðbeinendum leiðsögn og ráðgjöf í starfi.
- Veitir leiðsögn með því markmiði að auka færni einstaklinga í þátttöku í daglegu lífi.
- Verkefnaval miðar að verkþjálfun, persónulegri umhirðu, heimilishaldi, félagslegum þáttum, hreyfingu og afþreyingu.
- Vinnur í samræmi við stefnumörkun hæfingar og lög um málefni fatlaðs fólks.
- Sinnir ýmsum útréttingum og öðrum þeim störfum sem honum er falið af forstöðumanni.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun – á sviði heilbrigðis- og/eða félagsvísinda eða á öðru viðurkenntu fagsviði sem nýtist í starfi og starfsleyfi þar sem á við.
- Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar.
- Þekking og reynsla af ráðgjöf og þjónustu við fatlað fólk.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 21.júlí nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Halldórsdóttir forstöðumaður Heimaeyjar vinnu og hæfingarstöðvar í tölvupósti eða í síma 488 2620. Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá.
Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti merkt viðkomandi starfi sem sótt er um.
Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.