21. janúar 2025

Hásteinsvöllur – Gervigras

Vestmannaeyjabær óskar eftir tilboðum í verkið Hásteinsvöllur – Gervigras

Útboðsverkið felst í útvegun og fullnaðarfrágangi gervigrass ásamt fjaðurlagi (in-situ) vegna endurgerðar aðalvallar Hásteinsvallar í Vestmannaeyjum. Gervigrasið skal vera af bestu fáanlegum gæðum og uppfylla FIFA Quality staðal Alþjóðaknattspyrnusambandsins.

Helstu þættir verksins eru:

  • Gervigrasyfirborð alls um 9.360m2
  • Keppnisvöllur 68x105m
  • Heildarstærð 78x120m

Skiladagar verksins eru eftirfarandi:

  • Verklok keppnisvallar – 1. maí 2025

Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar frá og með þriðjudeginum 21. janúar 2025 kl. 14:00.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en fimmtudaginn 6. febrúar kl. 14:00


Jafnlaunavottun Learncove