12. júlí 2021

Gæsluvöllurinn Strönd v/Miðstræti sumarið 2021

Gæsluvöllurinn opnar í dag 12. júlí

 

 

Gæsluvöllurinn Strönd verður starfræktur 12.-29. júlí. Opnunartíminn er

kl. 13:00-16:00 alla virka daga og að auki frá 9:00-12:00 dagana 26.-29. júlí.

 

Gæsluvöllurinn er ætlaður börnum á aldrinum 20 mánaða til 6 ára en þar geta þau leikið sér með öðrum börnum í öruggu umhverfi. Börnin borða nesti sem þau koma með sjálf.

Komugjald er kr. 700 og verður sendur greiðsluseðill í lok tímabils. Einnig verður hægt að kaupa kort sem dugar í 5 skipti á kr. 3000 og 10 skipti á 6000 kr. gegn staðgreiðslu og skal þá millifæra upphæð korts og sýna kvittun. Reikningsnúmer er 582-26-29, kt. 690269-0159, setja Strönd í athugasemdir. Ekki er tekið við peningum á gæsluvellinum.

Umsjónarmaður gæsluvallarins er Brynja Hjörleifsdóttir

Fræðslufulltrúi