4. maí 2004

Framkvæmdir á Vestmannabraut

Vestmannaeyjabær hefur að undanförnu unnið að endurnýjun holræsalagna í bænum skv. áætlun til ársins 2010.  Á næstunni er fyrirhugaður einn áfangi í þeirri áætlun en þann  15. maí n.k. hefjast framkvæmdir við endurný

Vestmannaeyjabær hefur að undanförnu unnið að endurnýjun holræsalagna í bænum skv. áætlun til ársins 2010.  Á næstunni er fyrirhugaður einn áfangi í þeirri áætlun en þann  15. maí n.k. hefjast framkvæmdir við endurnýjun holræsa í Vestmannabraut frá Kirkjuvegi að Heimagötu.  Skipt verður um stofnlagnir, burðarlög og malbiksslitlög á svæðinu. (sbr. skyggða svæði á mynd sjá stærri mynd)

 Áætlaður framkvæmdatími er 15. maí til 20. júlí við lagnir og burðalög. Stefnt  er að því að ljúka malbikun á svæðinu þann 23. júlí n.k.  Verkinu verður skipt í tvo verkhluta, í þeim fyrri verður svæði frá Íslandsbanka að Fífilgötu tekið (áætlað 15.maí - 18.júní), og seinni hlutinn frá Fífilgötu að Heimagötu (áætlað 18.júní - 20.júlí). 

Hlutaðeigandi aðilar eru beðnir um að sýna aðgæslu á svæðinu meðan á framkvæmdum stendur. 

Vestmannaeyjabær þakkar fyrir skilning á þessu brýna verkefni.

 Með góðri kveðju

Frosti Gíslason
Framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar


Jafnlaunavottun Learncove