Frá Vestmannaeyjum til Vesturheims
Ráðstefna í Sagnheimum 7. júní kl. 9-12
Á laugardaginn verður haldin afar áhugaverð ráðstefna í tilefni þess að í ár eru 170 ár liðin frá því að Íslendingar settust fyrst að í Vesturheimi. Elsta Íslendingabyggðin er í bænum Spanish Fork, Utah en þar settust þrír einstaklingar að þann 7. september 1855. Það voru þau hjónin Samúel Bjarnason og Margrét Gísladóttir frá Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og Helga Jónsdóttir frá Landeyjum. Fram að fyrri heimstyrjöld, árið 1914, fluttust til Utah rösklega 400 Íslendingar, þar af helmingurinn frá Vestmannaeyjum. Flestir þeirra settust að í Spanish Fork og afkomendur þeirra eru ótrúlega margir ennþá búsettir þar. Í heildina er talið að fimmti hver Íslendingur hafi yfirgefið ættjörðina og sest að í Kanada og Bandaríkjunum. Saga Utah-fara er hins vegar einstök, auk þess sem hún er nátengd sögu Vestmanneyja.
Þá er þess einnig minnst á ráðstefnunni að 50 ár eru frá endurvakningu trúboðs á Íslandi.
Á meðal þess sem fjallað verður um á ráðstefnunni er uppruni vesturfara frá Eyjum, ferðin til Utah, persónulegar minningar á fyrstu árum trúboðsins og kynning á nýjum gagnagrunni um íslenska mormóna. Þá mun þjóðlagabandið Skógafoss flytja nokkur lög en meðlimir þess eru afkomendur Vestmanneyinga. Auk þess mun ríkisstjórinn í Utah og bæjarstjórarnir í Spanish Fork og Vestmannaeyjum flytja ávörp.
Ráðstefnan hefst í Sagnheimum á laugardaginn klukkan 09:00, boðið verður upp á súpu og brauð að fyrirlestrum loknum.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Ráðstefnan er styrkt af SASS.